Tíska og hönnun

Förðunarráð og innblástur frá HI beauty fyrir gamlárskvöld

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
HI beauty gefur hugmyndir að áramótaförðun.
HI beauty gefur hugmyndir að áramótaförðun. Samsett/Instagram

Það styttist í aðra þáttaröð af Snyrtiborðið með HI beauty en fyrsti þáttur verður sýndur á Vísi og Stöð 2 Vísi í janúar.  Við fengum Ingunni Sig og Heiði Ósk í HI beauty til þess að gefa lesendum nokkrar hugmyndir fyrir áramótaförðunina. Við gefum þeim orðið.

Steinar Steinar Steinar!

Látlaus augnförðun og fullt af steinum er lúkk sem við erum að sjá mikið af núna korter í gamlárs.

Við mælum með að nota sanseraðan augnskugga yfir allt augnlokið og raða síðan steinum í mismunandi stærð og áferð útum allt!

Til að ná fram fullkomnum ljóma á augnlokinu líkt og á myndinni hér að neðan er hægt að nota LES 4 OMBRES N°5 augnskuggapallettuna frá Chanel. Hægt er síðan að kaupa steina í flestum föndurbúðum.

Chanel

Til að setja punktinn yfir i-ið mælum við síðan með því að nota stök augnhár frá Eylure.

Eyelure

Dökk sultry augu og nude varir

Köldu tónarnir í augnförðunum eru að koma með „comeback“ og við erum að elska það. Hér er grár augnskuggi dreginn út að gagnauga og steinar settir í kringum augnumgjörðina. Hér eru dökk augu pöruð saman við látlausan nude varalit fyrir fullkomna gamlársförðun.

Augnskuggapallettan sem við mælum með til að ná fram þessu „sultry lúkki“ er Hypnose augnskuggapalletta númer 14 frá Lancome. Liturinn á pallettunni heitir líka Smokey Chic. 

Lancome

Fyrir fullkomnar nude varir mælum við síðan með Varalitnum L’ Absolu Rouge Hydrating Shaping Lipcolor í litnum 250 Beige Mirage frá Lancome.

Lancome

Litaður eyeliner og ljómi

Það er svo gaman að blanda saman litum og glimmer.

Grænn augnblýantur er hér tekinn og smudge-aður út í spíss, skyggingin er mjög létt til að ramma inn augað og glimmer sett yfir allt augnlokið. Ótrúlega einfalt & fallegt. Flott er að para augnblýantinn í stíl við áramótadressið.

Fyrir fallegan grænan eyeliner mælum við með Drama Liqui blýantinum frá Lancome í litnum 03 Green Metropolitan.

Lancome

Fyrir ljómandi augnskugga mælum við með Shimmer Down Pigmentinu frá NYX í litnum Platinum.

NYX

Þunnur eyeliner og glimmer

Falleg neautral brún augu, glimmer og þunnur eyeliner. Myndbandið sýnir ofureinfalt lúkk sem allir eiga að geta hermt eftir.

Fyrir fullkominn brúnan krem augnskugga mælum við með Paint Pot frá Mac í litnum Groundwork. 

MAC

Fyrir glimmer mælum við með undurfagra glimmerinu frá Mac í litnum Reflects Pearl.

MACMAC

Tengdar fréttir

Stjörnurnar sem skinu skærast á rauða dreglinum

Óskarsverðlaunin voru afhent í 93. skipti í gær. Það voru margar stjörnur sem vöktu mikla athygli á rauða dreglinum og fengum við Ingunni Sig og Heiði Ósk okkar í HI beauty til þess að taka saman það sem stóð upp úr að þeirra mati.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.