Segir að ríkasti klúbbur heims þurfi að vera raunsær í janúarglugganum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. desember 2021 11:16 Eddie Howe segir að það gangi ekki upp að kaupa alla þá leikmenn sem hafa verið orðaðir við Newcastle undanfarnar vikur. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Eddi Howe, knattspyrnustjóri Newcastle sem varð í haust ríkasta knattspyrnufélag heims, segir að klúbburinn þurfi að vera raunsær þegar janúarglugginn opnar eftir örfáa daga.
Gengi Newcastle á tímabilinu hefur ekki verið upp á marga fiska. Þrátt fyrir að Howe hafi verið ráðinn sem stjóri liðsins í byrjun nóvember eftir að Steve Bruce var látinn fara situr Newcastle í næst neðsta sæti deildarinnar með tíu stig, og það eina sem skilur liðið frá botnsætinu er örlítið betir markatala en Norwich er með. Eins og áður segir varð Newcastle ríkasta félag heims þegar að sádi-arabíski fjárfestingasjóðurinn PIF keypti félagið í haust, og Amanda Staveley, sem fór fyrir yfirtökunni, hefur gefið það út að liðið ætli sér að berjast um enska deildarmeistaratitilinn innan fimm ára. Til þess að það geti orðið þarf liðið í fyrsta lagi að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni, og í öðru lagi að betrumbæta lið sitt umtalsvert. Félagið þarf á nýjum leikmönnum að halda í janúarglugganum, en Eddie Howe segir að liðið og stuðningsmenn þess þurfi að vera raunsæir. Ótal leikmenn hafa verið orðaðir við félagið, en líklegast þykir að Newcastle fjárfesti í tveimur varnarmönnum og einum miðjumanni, „Við getum ekki bara farið og keypt alla,“ sagði Howe. „Ef við kaupum alla sem við höfum verið orðaði við þá værum við með lið með 1.000 leikmönnum.“ „Það verður að vera eitthvað raunsæi í þessu. Leikmennirnir okkar þurfa líka að hugsa um sína eigin framtíð og bæta sína eigin frammistöðu.“
Enski boltinn Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Handbolti Annar keppandi stal skíðum Fróða á HM Sport Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Handbolti Fleiri fréttir Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Echeverri má loks spila fyrir Man City „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Sjá meira