Innlent

463 greindust innanlands á jóladag

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Raðir hafa myndast við sýnatökustöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut undanfarna daga.
Raðir hafa myndast við sýnatökustöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut undanfarna daga. Vísir/Vilhelm

463 greindust með Covid-19 innanlands í gær, jóladag, þar af voru 128 í sóttkví eða tæp 28 prósent. Níu greindust á landamærunum.

Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá Almannavörnum. 

Samkvæmt tölum Almannavarna eru nú 3.526 í einangrun og 5.109 í sóttkví.

Fjöldi tekinna sýna og önnur nánari tölfræði um framgang faraldursins verða næst uppfærð á morgun og birtast á Covid.is, að því er fram kemur í skeyti Almannavarna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×