Martin og félagar misstigu sig í Euro Cup Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 21. desember 2021 21:48 Martin Hermannsson og félagar hans í Valencia máttu þola 12 stiga tap í kvöld. Borja B. Hojas/Getty Images for Hereda San Pablo Burgos Martin Hermannsson og félagar hans í Valencia máttu þola 12 stiga tap er liðið tók á móti Cedevita Olimpija í B-riðli Euro Cup í kvöld, 85-97.
Gestirnir í Cedevita tóku forystuna snemma leiks og náðu mest tíu stiga forskoti í fyrsta leikhluta. Martin og félagar náðu þó að minnka muninn og staðan var 22-24 þegar fyrsta leikhluta lauk. Martin og félagar tóku svo forystuna í öðrum leikhluta, en áfram var jafnræði með liðunum. Þegar flautað var til hálfleiks var smunurinn eitt stig, staðan 44-43, Valencia í vil. Gestirnir náðu forystunni á ný í þriðja leikhluta og leiddu með sex stigum þegar komið var að lokaleikhlutanum. Martin og félagar áttu svo fá svör í fjórða leikhlutanum þar sem að gestirnir kláruðu leikinn algjörlega. Þeir náðu mest 15 stiga forskoti og unnu að lokum tólf stiga sigur, 85-97. Martin skoraði tíu stig fyrir Valencia, tók eitt frákast og gaf þrjár stoðsendingar. Valencia situr í fimmta sæti B-riðils með fjóra sigra og þrjú töp, en liðið hafði unnið þrjá leiki í röð fyrir leikinn í kvöld. Cedevita Olimija situr hins vegar í áttunda sæti með þrjá sigra og fimm töp, en liðið hafði tapað seinustu fimm leikjum sínum í riðlinum.
Körfubolti Mest lesið Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport Fleiri fréttir Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Sjá meira