Sex sigurleikir í röð hjá Liverpool Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. desember 2021 22:00 Mohamed Salah skoraði annað mark Liverpool í kvöld. EPA-EFE/Peter Powell Liverpool vann sinn sjötta deildarleik í röð er liðið tók á móti Newcastle á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur urðu 3-1 og Liverpool heldur í við topplið Manchester City. Líklega hefðu fáir giskað á það að gestirnir frá Newcastle skildu taka forystuna í leiknum, en það var nákvæmlega það sem gerðist þegar fyrrum Liverpool-maðurinn Jonjo Shelvey setti boltann í netið með skoti fyrir utan teig. Giogo Jota jafnaði metin fyrir Liverpool á 21. mínútu þegar hann fygdi sínum eigin skall eftir og kom boltanum í netið, áður en Mohamed Salah kom heimamönnum í forystu fjórum mínútum síðar. Staðan var því 2-1 í hálfleik, en þrátt fyrir mikla yfirburði heimamanna í síðari hálfleik gekk þeim illa að koma boltanum í netið. Það gekk þó loksins á 87. mínútu þegar Trent Alexander-Arnold gulltryggði 3-1 sigur heimamanna með hnitmiðuðu skoti utan vítateigs. Liverpool situr sem fyrr í öðru sæti deildarinnar með 40 stig eftir 17 leiki, einu stigi á eftir toppliði Manchester City. Newcastle situr hins vegar enn í næst neðsta sæti deildarinnar með tíu stig. Enski boltinn
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti