Innlent

Jólabílabingó Kvenfélags Grímsneshrepps á bílaplani við Borg

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Ragna Björnsdóttir, formaður Kvenfélags Grímsneshrepps, sem hvetur fólk til að mæta á bílabingóið klukkan tvö á eftir og styrkja þar með gott málefni.
Ragna Björnsdóttir, formaður Kvenfélags Grímsneshrepps, sem hvetur fólk til að mæta á bílabingóið klukkan tvö á eftir og styrkja þar með gott málefni. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Kvenfélagskonur í Grímsnesi dóu ekki ráðalausar þegar þær þurftu að aflýsa árlegu jólabingói sínu í félagsheimilinu á Borg vegna hertra sóttvarna. Þær brugðu á það ráð að halda þess í stað Jólabílabingó, sem fer fram á planinu við félagsheimilið á Borg klukkan 14:00 í dag, sunnudag.

Um 50 konur eru í Kvenfélagi Grímsneshrepps. Félagið hefur haldið jólabingó til fjölda ára á Borg í félagsheimilinu, sem hefur verið vel sótt en ágóði bingósins hefur alltaf runnið til góðgerðarmála. Nú stóðu konurnar hins vegar frammi fyrir því að aflýsa bingóinu inni vegna 50 manna takmarkana út af Covid en þá datt þeim það snjallræði í huga að halda bara jólabílabingó á planinu við Borg, sem fer fram í dag klukkan tvö. Þá eru fjölskyldurnar bara sér í sínum bílum og bingóið verður í beinni útsendingu í gegnum Facebook.

„Þannig að fólkið situr út í bíl og spilar á spjöldin sín, sem við erum búin að selja til þeirra en við hefjum sölu á eftir klukkan 13:30 á spjöldum. Bingóstjórar verða inni og draga og svo streymum við þessu á Facebook síðu kvenfélagsins. Framtakið hefur vakið mikla athygli en eitthvað urðum við að gera, verðum að hugsa í lausnum þegar ástandið er eins og það er núna,“ segir Ragna.

Jólabílabingóið verður spilað í bílum á planinu við félagsheimilið á Borg í Grímsnesi klukkan 14:00 í dag.Aðsend

Ragna segir að vinningarnir verði glæsilegir og hún reiknar með góðri þátttöku í bingóinu og góðri stemmingu.

En hvað gerir fólk ef það fær bingó í bílnum sínum?

„Þá bara flautar það og við stökkvum út og athugum hvort að það er með allar tölur réttar og komum með vinning handa því,“ segir Ragna.

Ragna segir að það sé mikil áskorun að stjórna kvenfélagi á tímum Covid en allt hafist það þó með jákvæðu hugarfari.

„Þetta eru bara svo frábærar konur í Kvenfélaginu í Grímsneshreppi að þær hugsa bara í lausnum, þannig að við finnum bara leiðir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×