Vampírur bætast við söguheim Marvel Samúel Karl Ólason skrifar 2. nóvember 2021 14:03 Sony birti í dag nýja stiklu kvikmyndarinnar Morbius. Hún fjallar um lækni sem glímir við alvarleg veikindi og stendur í umfangsmikilli leit að lækningu. Sú leit endar í stuttu máli á því að Dr. Michael Morbius verður að vampíru.
Sagan um Morbius er í teiknimyndasöguheimi Marvel en Sony á kvikmyndaréttinn á henni, eins og Venom og Spiderman. Útgáfu myndarinnar hafði verið frestað vegna Covid-19 en nú á að frumsýna hana þann 28. janúar næstkomandi. Vert er að vara við því að hér að neðan er mögulega farið í spennuspilla varðandi myndir um Spider-Man, Venom og jafnvel fleiri. Söguheimahræra Í hvaða söguheimi Morbius gerist og hvort það sé í söguheimi Avengers (MCU) er ekki augljóst við fyrstu sýn. Lengi hefur legið fyrir að einhver útgáfa Spider-Man er í söguheimi Morbius en í stiklunni er vísað í nokkrar útgáfur hinnar vinalegu ofurhetju. Veggjakrot af Spider-Man með orðinu „morðingi“ gefur til kynna að Morbius gerist í MCU, til marks um það að Spider-Man var sakaður um að myrða Quentin Beck, eða Mysterio. Sömuleiðis stingur Michael Keaton upp kollinum en hann lék Adrian Toomes, eða Vulture, í Spider-Man: Homecoming. Einnig er vitnað í Venom, en þeir sem hafa séð þær myndir vita að þær þær gerast í raun ekki í MCU en mögulega gæti það breyst. Marvel og Disney hafa opnað Multiverse-hluta söguheimsins með þáttunum um Loka og What if...? teiknimyndaþáttunum á Disney+. Það felur í sér að sögur Marvel geta gerst í fjölmörgum víddum. Þrír köngulóarmenn? Í stiklu Morbius er einnig vitnað í Oscorp, fyrirtæki Norman Osborn úr Spider-Man sögunum og kvikmyndunum þar sem Tobey Maguire og Andrew Garfield léku Spider-Man. Í næstu Spider-Man mynd Marvel, Spider-Man: No Way Home, verður Multiverse kannað nánar og hafa fregnir borist af því að bæði Maguire og Garfield leiki sína köngulóamenn í myndinni. Willem Dafoe er einnig sagður leika Norman Osborn, eða Green Goblin. Það eru fleiri tilvísanir í stiklunni en þetta virðist vera orðin mikil flækja hjá Marvel og Sony og svo virðist sem maður þurfi bara að bíða og sjá hvað verður. Niðurstaðan virðist samt vera sú að með Morbius og gerð nýrrar kvikmyndar um vampírubanann Blade, sé Marvel að opinbera tilvist vampíra í MCU.
Bíó og sjónvarp Disney Sony Mest lesið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið Fannst eins og hann væri eini fulli í brekkunni fyrir hádegi Lífið Götutíska fyrir íslenskar aðstæður Lífið Helvítis kokkurinn: Gómsætar grillaðar lambakótelettur Lífið Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Tónlist Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Fleiri fréttir Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira