Lífið

Björk í Balenciaga með Hamra­hlíðar­kórnum í Hörpu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Hjalti Freyr Ragnarsson skrifa
Björk Guðmundsdóttir þurfti nokkrum sinnum að fresta tónleikaröð sinni vegna heimsfaraldursins.
Björk Guðmundsdóttir þurfti nokkrum sinnum að fresta tónleikaröð sinni vegna heimsfaraldursins. Santiago Felipe

Aðrir tónleikar af fjórum í tónleikaseríunni Björk Orkestral - Live from Reykjavík fóru fram í gær í Eldborg í Hörpu.

Tónleikana heldur Björk með stórum hópi íslensks tónlistarfólks sem hún hefur unnið með í gegn um árin, en tónleikarnir eru einnig til styrktar Kvennaathvarfsins.

Björk klæddist kjól frá Balenciaga og var með grímu frá James T. Merry. Hún var einnig með eyrnalokka frá Aurum. Stílisti Bjarkar var engin önnur en Edda Guðmundsdóttir. Steinunn Ósk sá um hár söngkonunnar og Sunna Björk Erlingsdóttir sá um að farða hana.

Santiago Felipe

Hverjir og einir tónleikar í tónleikaröðinni eru með sérstökum útsetningum, og kom hún í þetta sinn fram með Hamrahlíðarkórinn sér til halds og trausts. 

Kórstjórnandi hans er eins og þekkt er Þorgerður Ingólfsdóttir og þakkaði Björk henni sérstaklega fyrir starf sitt í gegnum árin. Gekk hún svo langt að segja að hún ætti þátt í tónlistaruppeldi flests starfandi tónlistarfólks landsins, og spurði svo létt í bragði hvort það væri ekki rétt hjá sér að það hefði flest þess verið í kórnum á einhverjum tímapunkti.

Santiago Felipe

Einnig lék Bergur Þórisson á ýmis hljómborð og orgel og Bjarni Frímann lék á píanó.  Björk lék mestmegnis lög af plötunum Medulla, Biofilia, Utopia auk nokkurra annarra, þar á meðal Human Behaviour í óhefðbundinni útgáfu eftir uppklapp.

Hamrahlíðarkórinn leið um sviðið í lausri kóreografíu sem jók enn á þegar tilfinningaþrungið andrúmsloft tónleikanna, sem var verulega litað af mjög myndrænum og sterkum kórútsetningunum. Á köflum minntu þær einna helst á kvikmyndatónlist, og náðu eins konar hápunkti í síðasta laginu fyrir uppklapp, Where Is the Line?, þar sem kórsöngurinn féll áreynslulaust að tryllingslegum taktinum.

Santiago Felipe

Á tónleikunum fyrir tveimur vikum kom hún fram með strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands, á þeim næstu verður hún með blásaraflokki Sinfó og á þeim síðustu með 15 manna kammersveit úr Sinfóníunni.

Enn eru tveir tónleikar eftir en uppselt er á þá báða, enn er hægt að kaupa miða í streymi. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar fleiri myndir sem ljósmyndarinn Santiago Felipe tók í Hörpu í gær.

Santiago Felipe
Santiago Felipe
Santiago Felipe
Santiago Felipe
Santiago Felipe
Santiago Felipe

Tengdar fréttir

Bríet gerði áhorfendur agndofa í Hörpu

Söngkonan Bríet hélt tvenna tónleika í Eldborgarsal Hörpu á föstudag. Á tónleikunum sýndi þessi listakona enn og aftur hversu ótrúlega hæfileikarík og fjölhæf hún er. 

Björk hélt sína fyrstu tón­leika á Ís­landi í þrjú ár

Björk hélt sína fyrstu tónleika af fjórum í tónleikaseríunni Björk Orkestral í Eldborg í Hörpu í gær. Hún kom fram ásamt strengjasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Viktors Orra Árnasonar. Flutt voru lög af plötunum Post, Vespertine og Dancer in the Dark.

Faldi synina fyrir Björk undir frétta­borðinu

Elín Stefánsdóttir Hirst, fyrrverandi fréttamaður á Stöð 2, rifjaði það upp í 35 ára afmælisþætti Stöðvar 2, sem sýndur var á laugardaginn að hún hafi eitt sinn þurft að daga syni sína tvo með í vinnuna þegar hún var að lesa kvöldfréttir. Drengirnir hafi verið eins og englar og beðið undir fréttaborðinu en skotið upp kollinum þegar tónlistarkonan Björk mætti í stúdíóið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.