Lífið

Stóð vaktina í Surts­eyjar­gosi og Heima­eyjar­eldum

Tinni Sveinsson skrifar
Sigrún Helgadóttir bókarhöfundur og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Sigrún Helgadóttir bókarhöfundur og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Fjöldi fólks fagnaði á dögunum útgáfu bókarinnar Sigurður Þórarinsson - Mynd af manni eftir Sigrúnu Helgadóttur.

Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur var einn merkasti vísindamaður Íslendinga fyrr og síðar. Um áratuga skeið fræddi hann landsmenn um eldgos, jökla og jarðskjálfta og stóð vaktina í miklum umbrotum svo sem Surtseyjargosi og Heimaeyjareldum. 

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson og hans hægri hönd, Orri Páll Jóhannsson, voru mættir til að heiðra Sigurð Þórarinsson sem átti frumkvæði að fyrstu lögum um náttúruvernd á Íslandi og barðist alla tíð fyrir umhverfismálum.

Samdi Vorkvöld í Reykjavík

Sigurður var einnig landsþekktur fyrir söngtexta sína sem hafa lifað sem standardar á öllum þorrablótum og í brekkusöngvum. Meðal þeirra má nefna Þórsmerkurljóð, Vorkvöld í Reykjavík og Að lífið sé skjálfandi lítið gras.

Sigrún Helgadóttir rithöfundur og líffræðingur hefur um langt skeið unnið að ævisögu þessa merka manns og á dögunum kom hún út á vegum Náttúruminjasafns Íslands. Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ávarpaði gesti og tók við fyrsta eintaki úr hendi safnstjóra Náttúruminjasafns, Hilmars J. Malmquist.

Sigríður Harðardóttir, ritstjóri verksins og Helga Hauksdóttir.
Halla Ólafsdóttir, Óskar Örn Hálfdánarson og Ástrós Arnardóttir.
Viðstaddir sungu Vorkvöld í Reykjavík, en Sigurður Þórarinsson samdi þennan alkunna texta.
Kristján Jónsson og Kristján B. Jónasson.
Sigríður Baldursdóttir og Björg Þorleifsdóttir.
Ólafur Karl Nielsen og Stefán Örn Stefánsson.
Ásdís Vatnsdal og Sigrún Jakobsdóttir.
Tómas Jónsson, Guttormur Björn Þórarinsson og Einar.
Valdís Sigurðardóttir, Jóhann Friðleifsson og Snjólaug Sigurðardóttir, dóttir Sigurðar Þórarinssonar.
Sigrún Helgadóttir, Hilmar J. Malmquist og Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Torfi Ágústsson, Halldór Ólafsson sem var aðstoðarmaður Sigurðar Þórarinssonar, Páll Imsland og Sven Sigurðsson, sonur Sigurðar Þórarinssonar.
Ragnheiður L. Eyjólfsdóttir og Elsa Rakel Ólafsdóttir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.