Innlent

Að­stoðað fimm­tán öku­menn á sama blettinum

Eiður Þór Árnason skrifar
Fjölmargir bílar hafa lent í krapa við Reynisfjall í dag. 
Fjölmargir bílar hafa lent í krapa við Reynisfjall í dag.  Bryndís Fanney Harðardóttir

Á annan tug bíla hafa farið út af veginum við Reynisfjall í dag en mjög hvasst hefur verið á svæðinu. Fylgdarakstur er nú yfir fjallið en veginum verður lokað klukkan 21 vegna vonskuveðurs og ofankomu.

Dagurinn hefur verið annasamur hjá Bryndísi Fanneyju Harðardóttur sem starfar ásamt eiginmanni sínum hjá bifreiðaverkstæðinu og dráttarþjónustunni Framrás í Vík. Þau voru búin að koma fimmtán ökumönnum til aðstoðar á sjötta tímanum í dag en vinnudagurinn hófst klukkan níu í morgun. Ekki sér enn fyrir endann á honum.

Öll ökutækin fóru út af þjóðveginum á nokkurra kílómetra kafla norðan við Reynisfjall þar sem vindhviður hafa farið yfir 30 metra á sekúndu. Að sögn Bryndísar er nær eingöngu um að ræða erlenda ferðamenn sem vildu ekki láta veðurviðvaranir trufla þétta dagskrá. 

Haldi að þau séu á vetrardekkjum

Bryndís segir að fjölmargir ferðamenn telji sig vera á vetrardekkjum en svo sé gjarnan ekki.

„Þeir spyrja bílaleigurnar hvort það séu vetrardekk undir bílnum og þeim er sagt það en svo eru þeir bara á sumardekkjum.“ Um sé að ræða mjög alvarlegt mál ef satt reynist en hún telur að flestir hafi verið búnir að heyra af veðrinu. 

„Það virðist vera en það fer samt, sem er auðvitað ekki nógu gott. Þetta fólk á klárlega ekki að vera á ferðinni.“ Margir séu á svefnbílum eða svokölluðum camperum og um borð séu einstaklingar allt frá tveggja ára aldri og upp í gamalmenni. Gul veðurviðvörun er í gildi á svæðinu og sérstaklega varað við sterkum hviðum við fjöll.

Ökutækjum af öllum stærðum og gerðum hafa átt erfitt með að komast aftur inn á þjóðveginn. Bryndís Fanney Harðardóttir

Keyri oft út af að ástæðulausu

Bryndís segir að aðstæðurnar við Reynisfjall komi ökumönnum gjarnan á óvart og þeir keyri oft út af þjóðveginum að ástæðulausu og fljóti þar upp í krapa. Slæm færð hafi verið á veginum og mokstursmenn hafi ekki undan.

„Ökumennirnir eru bara hræddir, ráða illa við bílinn og þá skella þeir sér út af.“

Greinilegt sé að fólk sé með stífa dagskrá og velji að taka áhættuna til að halda áætlun og krossa í öll boxin á listanum.

„Við biðjum alla um að fara ekki lengra en það er allur gangur á því. Við höfum gáð að því þegar við komum í þorpið og þá eru þeir farnir,“ segir Bryndís.


Tengdar fréttir

Björgunar­sveitar­fólk á tánum vegna hvellsins í kvöld

Gular viðvaranir taka gildi síðar í dag á suðurströndinni og á Vestfjörðum en búast má við nokkrum hvelli í kvöld. Björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu og segir upplýsingafulltrúi Landsbjargar að þau séu komin í veturgírinn.

Snjó festi víða í nótt

Fólk sem var snemma á ferð í morgun þurfti líklega að skafa af bílum sínum þar sem snjó festi á Suður- og Vesturlandi, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×