Skoðun

Hluthafi í auðlind

Ólafur Örn Jónsson skrifar

Veistu ekki að þú er hluthafi í íslensku sjávarauðlindinni, einni stærstu og verðmætustu auðlind í veröldinni (miðað við mannfjölda)?

Fyrst svo er hvar er þá arður þinn af þessari risa auðlind? Arðurinn er margir tugir milljarða króna á ári en hann er ekki fyrir þig þótt þú sért eigandinn?

Það er einmitt málið. Með fölsun á gengi krónunnar er komið í veg fyrir að þú og ég og 95% Íslendinga plús ríkis og bæjarsjóða njótum arðsins af Sjávarauðlindinni. Með fordæmalausum uppkaupum á gjaldeyri sem hófst 2014 í Seðlabankanum með skipun frá þáverandi/núverandi Fjármála og Efnahagsráðherra Bjarna Benediktssyni var komiðí veg fyrir að gengi krónunnar sem átti/á að fljóta hækkaði í takt við aukinn hagvöxt eins og eðlilegt telst og færði okkur þar með arð okkar af útflutningi sjávarafurða í formi verðmeiri krónu og auknum kaupmætti launa og lífeyris.

Þessi dæmalausa hegðun undir stjórn Bjarna Benediktssonar innan ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur við að rýra verðgildi krónunnar kemur ekki bara í veg fyrir að verðgildi krónunnar hækki heldur rýrir þetta allar krónu eignir og krónu laun og lífeyrir á sama tíma og hagnaður útgerðarinnar sem er grímulaus eigandi Sjálfstæðisflokksins margfaldsast svo milljörðum skiptir. Heyrir þú ekki fréttirnar af þínum peningum í þjófs höndum?

Með þessum fordæmalausu uppkaupum á gjaldeyri í þágu stór útgerðanna sem öllu ráða er ekki bara komið í veg fyrir þinn réttmæta aukna kaupmátt launa heldur veldur lágt gengi krónunnar aukinni verðbólgu sem enn frekar skerðir kaumátt launa þín og mín og ríkis og bæja.

Þessi fádæma hegðun sem er kolólögleg að mínu mati sýnir einhverja mestu spillingu og græðgi sem við höfum orðið vitni að. Engu á að eyra. Þetta hefur kostað okkur ólíðandi fátækt, rýrnun lífeyrissjóða, eyðileggingu og fjársvelti heilbrigðiskerfisins, velferðarkerfisins og vegakerfisins sem er víða orðið stór hættulegt vegna dráttar á nauðsynlegri uppbyggingu og bara venjulegu viðhaldi.

Þú og ég og við öll verðum að rísa upp geng þessu fádæma RÁNI sem hófst undir forystu Bjarna Benediktssonar 2014 og hefur fært stór útgerðunum mörg hundruð milljarða óáunnar tekjur á okkar kostnað ásamt að rýra eignir okkar.

Aldrei hefur Vestræn þjóð verið gjaldfelld jafn svívirðilega og við Íslendingar frá hruni þar sem við almenningur bárum allan kostnað á meðan þeir sem ollu hruninu með kvótalánunum veltu sér upp úr óáunnum óðagróðanum.

Hættum að vera vilja lausir þrælar útgerðanna og markaðarins sem éta upp eigur okkar og færir þeim er síst skyldi þvílíkan óáunninn auð að annað eins hefur ekki sést í hinni víðu veröld.

Höfundur er heldri borgari og fv skipstjóri og aflamaður.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×