Duterte segist aftur ætla að setjast í helgan stein Árni Sæberg skrifar 2. október 2021 21:15 Rodrigo hefur verið forseti Filippseyja frá árinu 2016. Ezra Acayan/Getty Images Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, tilkynnti í dag að myndi hætta afskiptum sínum af stjórnmálum þegar núverandi kjörtímabili hans lýkur. Hann hafði áður þegið tilnefningu um að vera varaforsetaefni flokks síns í forsetakosningum í maí næstkomandi.
Í frétt The Guardian um málið segir að ákvörðun hans um að bjóða sig fram til varaforseta hafi verið umdeild á Filippseyjum. Reglur þar í landi kveða á um að forseti landsins megi einungis sitja eitt sex ára kjörtímabil. Margir hafi talið á áætlun Dutertes væri að stýra landinu áfram úr varaforsetastól. Stjórnmálarýnendur telja jafnframt að erfitt sé að taka forsetann á orðinu þar sem hann tilkynnti einnig árið 2015, þegar hann var borgarstjóri Davaó, að hann myndi hætta öllum afskiptum af stjórnmálum. Í stað þess að hætta bauð hann sig fram til forseta og vann kosningarnar með miklum yfirburðum. Þá telji margir Filippseyjingar að nýjasta útspil forsetans greiði leið dóttur hans, Söru Duterte, að embætti forseta. Hún er nú borgarstjóri Davaó líkt og faðir hennar var. Segist fara að vilja þjóðarinnar Samhliða tilkynningu um brottför Dutertes af stjórnmálasviðinu tilkynnti hann að Christopher „Bong“ Go, samstarfsmaður hans í PDP-Laban flokknum, myndi bjóða sig fram til varaforseta í hans stað. „Það er meirihlutaskoðun þjóðarinnar að ég sé ekki hæfur, og að framboð mitt brjóti gegn stjórnarskrá. Ég mun fara að óskum ykkar og í dag tilkynni ég starfslok mín í stjórnmálum,“ sagði forsetinn fráfarandi við fjölmiðla í dag.
Filippseyjar Mest lesið Lík Jay Slater fundið Erlent Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Innlent Íslendingur fannst látinn á Spáni Innlent Betlari til leiðinda í miðbænum Innlent Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Innlent Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Innlent Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Innlent J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Erlent Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld Innlent Þriggja bíla árekstur undir Hamraborg Innlent Fleiri fréttir Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Fulltrúar Hamas og Fatah funda í Kína í næstu viku Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Lík Jay Slater fundið Kallas segir af sér vegna nýja starfsins Raðmorðingi játar að hafa myrt allt að 42 konur Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon „Ég ætti að vera dauður“ Tæki 100 flutningabifreiðar 15 ár að flytja húsarústirnar á brott Ávarpaði þjóðina og hvatti menn til að „kæla“ orðræðuna Ástand hinna særðu sagt stöðugt Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Hinn látni slökkviliðsmaður sem fórnaði sér fyrir fjölskylduna Fundu sprengjur í bíl og á heimili árásarmannsins „Við viljum heim þar sem ástin sigrar“ Ótrúleg mynd virðist sýna kúlu fljúga fram hjá Trump Árásin komi til með að auka stuðning við Trump „Bandaríkjamenn krefjast svara um morðtilræðið“ Segir Guð hafa bjargað sér Bjarni segir atburði gærkvöldsins átakanlega Svona var vettvangur árásarinnar Musk styður Trump Grunaður árásarmaður hét Thomas Matthew Crooks Leiddur blóðugur af kosningafundi eftir skotárás Fannst á lífi eftir tvo sólarhringa neðanjarðar Umfangsmikil árás á Gasa talin hafa banað minnst 71 Maður handtekinn vegna líkamsleifa í ferðatösku Felldi tár þegar málinu var vísað frá Sjá meira