Skoðun

Litlu og stóru skrefin að grænni fram­tíð

Una Steinsdóttir skrifar

Eitt slíkt markmið hefur minn vinnustaður sett sér og snýr að því að náð verði fullu kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040. Ekki er eingöngu átt við rekstur bankans heldur einnig með tilliti til fjármögnunar á útblæstri í gegnum lána- og eignasafn. Þetta þýðir að við munum hafa markmið okkar um kolefnishlutleysi í huga við mat á lánveitingum og verðlagningu. Þetta verður vonandi mikilvæg varða á þeirri leið sem íslenskt samfélag hefur skuldbundið sig til að fylgja í gegnum aðild að Parísarsáttmála Sameinuðu þjóðanna og styður við metnaðarfulla aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftlagsmálum. En meira þarf að sjálfsögðu til.

Í þessu sem svo mörgu geta lítil og meðalstór fyrirtæki verið drifkrafturinn í mikilvægum umbreytingum. Þau leika lykilhlutverk í nýsköpun og framþróun almennt í íslensku efnahagslífi, enda Ísland að megninu til lítið og meðalstórt þegar kemur að að stærð og umfangi fyrirtækja. Við eigum auðvitað víða langt í land; aðferðarfræði, gögn og upplýsingar til að byggja á eru ennþá af skornum skammti á mörgum sviðum og viðfangsefnið sannarlega ögn óáþreifanlegt í mörgu tilliti. Hið jákvæða er að skilningur, áhugi og metnaður fyrirtækja í sjálfbærni er hratt vaxandi og ég hef tekið eftir að þau samtöl sem ég á við forsvarsfólk fyrirtækja varðandi sjálfbærni falla í frjóan jarðveg.

Hvort viðhorf innan íslenskra fyrirtækja til sjálfbærnimála séu að breytast nógu hratt og markmiðin nægilega metnaðarfull er að sjálfsögðu deilt um en breytingin sem orðið hefur á einungis örfáum árum fylla mig þó bjartsýni. En tækifærin til að leggja lóð á vogaskálar kolefnihlutleysis liggja svo miklu víðar en margur hyggur. Orkuskipti í samgöngum eru að líkindum hvergi jafn nærtækt skref að stíga en á Íslandi og þar fer valkostum hratt fjölgandi.

Þegar litið er til nýskráningar ökutækja hér á landi stefnir í að árið 2021 verði það fyrsta þar sem rafmagns- og tvinnbifreiðar verði í meirihluta. Þegar orkuinnviðir bjóða loks upp á rafvæðingu bílaleiguflotans, meðal annars með neti hleðslustöðva við Keflavíkurflugvöll, og við getum rafvætt hafnir landsins ætti fljótlega að sjá fyrir endann á notkun jarðefnaeldsneytis í samgöngum.

Við viljum styðja við þessa þróun, meðal annars með grænum lánveitingum, sem aukist hafa stórum skrefum undanfarin misseri, og virku samtali við okkar viðskiptavini. Litlu skrefin, rétt eins og þau stóru, geta nefnilega vegið þungt og allt hjálpar. Ég veit svo sem ekki hvað ég ætla vera að sýsla árið 2040 en mikið væri nú gaman að geta litið um öxl og séð hvernig íslenskt atvinnulíf, stór fyrirtæki, meðalstór og smá, náðu raunverulegum árangri í sjálfbærnimálum. Ég er sannfærð um að fyrirtæki sem veðja á sjálfbærnina og leggja sitt af mörkum munu vera þau fyrirtæki sem skara fram úr og tryggja sjálfbærari hagvöxt til framtíðar, öllum okkar til gæfu og gagns.

Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptabanka Íslandsbanka.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×