Tónlist

Úlfur Úlfur gefur út Hamfarapopp með Sölku Sól

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Úlfur Úlfur sendir frá sér nýja tónlist í dag.
Úlfur Úlfur sendir frá sér nýja tónlist í dag. Aðsent

Úlfur Úlfur sendi í dag frá sér lagið Hamfarapopp. Með þeim í laginu Arnari og Helga Sæmundi syngur Salka Sól Eyfeld. 

„Salka Sól syngur í fyrsta sinn með okkur á upptöku þótt hún hafi reglulega stokkið upp á svið með okkur og hjálpað til við að flytja Tarantúlur,“ segir Arnar í samtali við Vísi. 

„Hamfarapopp er fyrsta lagið sem við gefum út eftir óformlega pásu sem við tókum til að stofna fjölskyldur og heimili. Lagið var valið úr bunka af lögum sem við höfum samið síðastliðið ár og ætlum að gefa út formlega á næsta ári,“ segir Arnar, sem á nú von á sínu öðru barni með eiginkonu sinni Sölku Sól. Helgi Sæmundur á einn son með Kolfinnu kærustu sinni.  

„Helgi býr á Sauðárkróki og þar verður öll nýja tónlistin til en síðustu þrjár breiðskífur hafa að nær öllu leiti verið samdar í kjöllurum í miðbæ Reykjavíkur. Það kemur því ekki á óvart að tónninn sé annar en áður – nú þegar innblásturinn er sveitin og börnin fremur en tjúttið í 101. Tjúttið er samt rótgróið í sál sveitarinnar og aldrei langt undan.“

Lagið Hamfarapopp má heyra í spilaranum hér fyrir neðan. 

Klippa: Úlfur Úlfur - Hamfarapopp

Tengdar fréttir

Tóku upp tón­listar­mynd­bandið á skjálfta­svæðinu

„Það er góður dagur í dag. Við Helgi Sæmundur fórum tvisvar í sveitina á síðasta ári og úr varð falleg plata sem kemur einhvern tíma á þessu ári. Lagið Heim er fyrsti síngúll af komandi plötu sem við erum báðir mjög stoltir af og spenntir að leyfa fólki að heyra,“ segir Gauti Þeyr Másson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.