Skoðun

Án ger­enda eru engir þol­endur

Brynja Dan Gunnarsdóttir skrifar

Á síðustu vikum höfum við enn og aftur fengið áminningu um það þjóðfélagsmein sem kynbundið ofbeldi er. Það er á ábyrgð okkar allra að vinna gegn því með öllum tiltækum ráðum. Best væri auðvitað ef ofbeldi ætti sér aldrei stað. Því án gerenda eru engir þolendur.

Forvarnir og fræðsla eiga að vera grunnstoðir vinnunnar gegn ofbeldi, ekki hvað síst meðal barna og ungmenna. Með forvörnum og fræðslu barna og ungmenna getum við stuðlað að því að fækka gerendum, þ.e. að gerendur verði hreinlega ekki til. Slíkt verkefni krefst samvinnu allra hlutaðeigandi aðila, m.a. skólayfirvalda, ríkis, sveitarfélaga og foreldra.

Vissulega hefur margt verið gert. Þegar hafa verið samþykktar þingsályktanir um aðgerðir gegn ofbeldi og forvarnir gegn kynbundnu ofbeldi meðal barna og ungmenna. Staða samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs hefur verið lögfest og viðamiklar lagabreytingar í þágu barna á vegum félags- og barnamálaráðherra. Þó er enn langt í land.

Samvinna

Efla þarf samvinnu milli lögreglu, sýslumanna og skóla- og velferðarsviða sveitarfélaganna. Þessir aðilar eru oft fyrstir til að greina erfiða stöðu barna. Lögregla og sýslumenn eru nauðsynlegur hluti innleiðingar kerfisbreytinga í þágu barna sem nú hafa verið lögfestar og þurfa þessir aðilar að taka fullan þátt.

Tilkynningar

Meginþorri ofbeldisatvika tilkynnast ekki. Sú staða er óviðunandi enýmsar ástæður eru fyrir því að einstaklingur ákveður að tilkynna ekki. Því verðum við að sýna skilning, en á sama tíma mynda umgjörð sem tekur á móti þolanda á þann hátt að hann sjái ekki eftir því að tilkynna ofbeldi.

Bæta þarf rannsókn og saksókn mála sem varða kynferðisbrot og ofbeldi í nánum samböndum. Á sama tíma og við hvetjum þolendur til að kæra mál verðum við að tryggja að málin séu unnin bæði hratt og af mikilli fagmennsku. Leggja verður af hagræðingarkröfu við gerð fjárlaga þegar kemur að rannsókn og saksókn þessara mála. Jafnframt þarf að skýra lagaákvæði um bótaskyldu íslenska ríkisins vegna brota sem fyrnast í höndum ákæruvaldsins, þó slík fyrning eigi auðvitað helst að heyra sögunni til.

Þróa verður áfram samstarf lögreglu og sveitarfélaga gegn ofbeldi, og fara í nauðsynlegar laga-og reglugerðarbreytingar til að styðja enn betur við þolendur og fá betri úrlausn fyrir gerendur.

Ný og stafræn ógn

Á síðastliðnum árum hefur ný ógn vaxið óðfluga. Stafræn ofbeldisbrot verða sífellt stærri þáttur kynbundins ofbeldis. Konur og stúlkur verða fyrir ofbeldi á netinu í formi líkamlegra hótana, kynferðislegrar áreitni og ofsókna af hendi eltihrella og nettrölla. Hvorki lög, réttarvörslukerfið eða þjónusta við þolendur virðist ná yfir þessa nýju og miklu ógn. Það liggur augum uppi að nauðsynlegt er að ganga í breytingar og framfarir á stafrænni löggæslu til að sporna við þessari þróun og ná utan um þau mál sem falla þarna undir.

Við viljum bæta og uppfæra samfélagið okkar. Það gerum við með að koma í veg fyrir að gerendur beiti ofbeldi og með því taka utan um þolendur þegar ofbeldi á sér stað.

Höfundur er í 2. sæti lista Framsóknarflokksins í Reykjavík norður.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×