Skoðun

Ég fékk tengda­mömmu í heim­sókn

Hólmfríður Árnadóttir skrifar

Hún kom með nýja handprjónaða peysu handa mér og eins og hennar er von og vísa mátti ég ekki borga fyrir viðvikið. Hún væri nú ekki of góð að prjóna fyrir mig komin á eftirlaun og hefði nægan tíma en ég ekki. Svona konur eru gersemar og uppfullar af þekkingu og færni sem við margt yngra fólkið búum ekki yfir.

Tengdamamma mín var verkakona alla sína tíð og lengi vel einstæð með sex börn á framfæri. Hún hefur þurft að telja krónur og aura alla sína tíð en samt telur hún ekki eftir sér að gefa tíma sinn til að sinna barnabörnum, baka fyrir fjölskylduna og prjóna kynstrin öll af flíkum sem við fjölskyldumeðlimir skörtum við flest tækifæri. Hún er eitt stórt hjarta og einstaklega flink í höndunum.

Fyrir hana og fyrir alla aðra í hennar stöðu vil ég berjast með félagslegt réttlæti að vopni. Það er réttlætismál að hún fái mannsæmandi lífskjör, njóti félagslegra réttinda og lifi við mannlega reisn. Að hún hafi efni á að kaupa lyfin sín og garn í flíkur fyrir ættingja utan þess að eiga í sig og á. Fyrir hana þarf að einfalda bótakerfið sem hefur vaxið um of í augum flestra í hennar sporum. Fyrir hana er einnig afar mikilvægt að ellilífeyrir fylgi lágmarkslaunum og að haldið sé áfram að lækka lyfjakostnað með hagkvæmari innkaupum til dæmis í samvinnu við Norðurlöndin eða kanna möguleika á að aftur verði til lyfjaframleiðsla á vegum hins opinbera með hag aldraðra og öryrkja að leiðarljósi.

Tengdamamma mín er ern og heldur heimili og myndi njóta góðs af því að fá heimaþjónustu sérstaklega þegar hún á níræðisaldri á erfiðara með að sinna öllum heimilisverkum líkt og áður. Þegar hún vill njóta heilsdags þjónustu eða jafnvel fara á hjúkrunarheimili þá á slíkt í boði. Við í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði viljum setja af stað vinnu við að endurskoða þjónustulíkan í öldrunarþjónustu með áherslu á þverfaglega samvinnu heilsugæslu og félagsþjónustu. Það er nefnilega skýlaus réttur þeirra sem mótað hafa landið og lagt sitt af mörkum við að byggja það upp að lifa með reisn óháð efnahag. Við sem yngri erum eigum að hugsa til þeirra með virðingu og gæta að réttindum þeirra í okkar baráttu fyrir betra samfélagi. Þau eiga það sannarlega skilið.

Höfundur er oddviti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×