Newsom stendur af sér áhlaupið í Kaliforníu Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 15. september 2021 06:51 Newsom ræddi við blaðamenn eftir að ljóst varð að hann stóð af sér áhlaupið. AP/Rich Pedroncelli Repúblikönum í Kalíforníu hefur mistekist að hrekja ríkisstjórann Gavin Newsom úr embætti. Kosið var í ríkinu um hvort Newsom ætti að víkja en mikill meirihluti þáttakenda í kjörinu var á því að Newsom ætti að sitja áfram.
Reglurnar í Kalíforníu eru á þá leið að aðeins lítill hluti íbúa getur farið fram á atkvæðagreiðslu um hvort ríkisstjórinn eigi að víkja á miðju kjörtímabili. Andstæðingum Newsom tókst að ná tilskildum fjölda en hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir harðar aðgerðir í kórónuveirufaraldrinum, sem hann hefur svo ekki farið sjálfur eftir í einu og öllu. Til að mynda fréttist af honum að borða á veitingastað ásamt fjárhagslegum bakhjörlum á sama tíma og öðrum íbúum Kalíforníu var gert að halda sig heima hjá sér þegar faraldurinn var í mikilli sókn. Fjörutíu og sex frambjóðendur af ýmsu tagi buðu sig fram til að taka við af Newsom en á endanum fóru leikar á þann veg að hann hefur fengið um tvo þriðju hluta atkvæða í kjörinu þegar búið er að telja um 60 prósent atkvæða. Þrátt fyrir óvinsældir Newsom er því um öruggan sigur að ræða en talið er að helsti mótframbjóðandi hans, Larry Elder, hafi í raun komið honum til hjálpar. Elder er eldheitur stuðningsmaður Donalds Trump, fyrrverandi forset,a sem er ekki sérstaklega vinsæll í Kalíforníu.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Innlent Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Innlent Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Innlent Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Erlent Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Innlent Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Innlent Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Erlent Einhleypir karlmenn standa verst Innlent Háværar framkvæmdir stöðvaðar Innlent Fleiri fréttir Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard „Þetta er pólitískt val og meðvituð árás á getu fólks til að lifa af“ Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Dómur um trans konur: „Aðeins konur, engir karlar“ Furðureikistjarna sem gengur hornrétt um tvístirni Telja ákvæði jafnréttislaga ekki ná yfir trans konur Fyrrverandi forseti Perú í fimmtán ára fangelsi fyrir peningaþvætti Hafa nú lýst yfir stofnun ríkisstjórnar í landinu Flóttafólki fækkar verulega við landamæri Evrópu Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Líkir viðurkenningu á Palestínu við „sigur fyrir hryðjuverk“ Kyrrsetja þyrlufyrirtækið eftir banaslysið í New York Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Frysta milljarða fjárveitingar til að refsa Harvard-háskóla Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Tveir skotnir til bana í Gautaborg Sæðisgjafar hafi feðrað tugi barna í trássi við lög Harvard háskólinn neitar að fylgja skilyrðum Trumps Arkitekt guðs skrefi nær dýrðlingatölu Leiðtogar fordæma mannskæða árás Rússa Neita enn að hleypa AP fréttamönnunum að Breyta stjórnarskránni til að banna gleðigönguna Íslenskir feðgar flugu með þyrlunni nokkrum tímum fyrir slysið Fordæma harkalega árás Rússa á Sumy Sjá meira