Skoðun

Samfylkingin og ASÍ eiga samleið

Kjartan Valgarðsson skrifar

Jafnaðarmenn og verkalýðshreyfingin berjast í þessari kosningabaráttu fyrir því að bæta kjör fólks og hafa komið því rækilega á dagskrá. Samfylkingin hefur sett kjör fjölskyldunnar og barnafólks í forgang og Alþýðusamband Íslands hefur verið áberandi með skilaboð sín um að það sé nóg til.

Það er nóg til.

ASÍ kynnti skýrslu sína um skatta og ójöfnuð sl. þriðjudag. Samfylkingin hefur sett fram tillögu um nýjan stóreignaskatt, 1,5% á nettó eignir umfram 200 makr. Skatturinn mun skila um 10-14 makr sem við ætlum að nota m.a. til að hækka barnabætur, sem byrja þá ekki að skerðast fyrr en frá og með meðallaunum. Við ætlum að greiða barnabæturnar út mánaðarlega. Margir þekkja til einstæðra foreldra sem vinna aukavinnu eftir venjulegan vinnudag til að ná endum saman. Í sumum tilfellum myndu hækkaðar barnabætur vera jafnháar og útborguð laun fyrir aukavinnuna, sem gerði þá foreldrunum kleift að verja meiri tíma með börnunum. Betri aðstæður barnafjölskyldna koma sér vel fyrir heimili, atvinnulíf, skóla og heilbrigði. Þar er allt að vinna.

Skýrsla ASÍ sýnir að það er hægt að ná fram meiri jöfnuði með breytingum á skattkerfinu, með stóreignaskatti, hækkuðu veiðileyfagjaldi, lokun á skattaglufum og -sniðgöngu og betra skatteftirliti.

Sjálfstæðismenn tala alltaf um skattalækkanir fyrir kosningar. Reyndar hefur Sjálfstæðisflokkurinn náð góðum árangri í þessu uppáhaldsstefnumáli sínu, en bara fyrir efnaðasta fólk landsins. ASÍ skýrslan sýnir hvernig skattgreiðslur fóru lækkandi hjá hinum allra ríkustu eftir að auðlegðarskattur Jóhönnustjórnarinnar var afnuminn, en hann jafnaði skattbyrðina þannig að þau ríkustu greiddu aukinn hlut til samneyslunnar.

Samfylkingin berst fyrir launafólk og verkalýðshreyfinguna. Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir sitt fólk, þá sem mest bera úr býtum. Samtök atvinnulífsins eru þeirra bandamenn. Stefna og áherslur jafnaðarmanna, innan og utan verkalýðshreyfingarinnar, fyrir þessar kosningar er það sem kosningabaráttan snýst um. Jafnaðarmenn stýra dagskránni vegna þess að fólkinu í landinu finnst stefna okkar vera þess eigin stefna.

Höfundur er formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×