Skoðun

Eru sjálfsvíg sjúkdómseinkenni?

Hrefna Svanborgar Karlsdóttir og Svava Arnardóttir skrifa

Geðheilbrigðismál og sjálfsvíg hafa verið töluvert í umræðunni undanfarið ár, sérstaklega vegna heimsfaraldurs covid-19. Í umræðunni hefur komið fram sterkt ákall eftir einhvers konar breytingum og auknu fjármagni í málaflokkinn. Fólk er óánægt með geðheilbrigðiskerfið okkar. Og það vantar sannarlega fjármagn - en það þarf líka að skipta algjörlega um hugmyndafræði!

Hugmyndafræðin sem geðheilbrigðisþjónustan vinnur eftir byggist á því að andleg þjáning sé sjúkdómur. Þessi nálgun beinir okkur inn á ákveðnar brautir hvað varðar meðferð við vanlíðan þar sem fókusinn er alfarið settur á einstaklinginn og einstaklingsmiðaðar lausnir (t.d. HAM - að breyta hugsunarhætti - og lyf). Mjög lítil áhersla er lögð á að skoða fyrri lífsreynslu fólks, núverandi aðstæður og umhverfi eða samfélag og menningu. Staðreyndin er hins vegar sú að andleg þjáning og sjálfsvígshugsanir verða aldrei til í tómarúmi og raunveruleg rót þeirra er því ekki einstaklingurinn sjálfur. Tilfinningaleg krísa og öngstræti er hluti af því að vera manneskja. Vanlíðan er skiljanlegt viðbragð við því sem er að gerast eða hefur gerst í lífi okkar - hún er ekki sjúkdómseinkenni! Við getum öll lent á þeim stað í lífinu þar sem okkur líður verulega illa og okkur langar jafnvel til að fara. Öll getum við upplifað að lífið sé yfirþyrmandi og að við höfum ekki úrræði, bjargir eða þann stuðning sem við þurfum til að breyta aðstæðum okkar og líðan. Við upprætum vandann ekki með sjúkdómsmiðaðri nálgun heldur gerum við það með því að draga úr sjúkdómsvæðingu tilfinninga og horfa heildrænt á líðan fólks. Það er reynsla okkar í Hugarafli að orsök andlegrar þjáningar, sjálfsskaða og sjálfsvígshugsana sé einmitt að finna í fyrri lífsreynslu, núverandi aðstæðum eða umhverfis- og samfélagsþáttum. Þetta geta t.d. verið þættir eins og áföll, atvinnumissir, sambandsslit, ofbeldi, jaðarsetning, mismunun og skortur á félagslegum tengslum, stuðningsríku umhverfi og tækifærum til menntunar og samfélagsþátttöku.

Við í Hugarafli erum langþreytt á því að það sé skautað fram hjá raunverulegri orsök vandans og að vanlíðaninni sé skellt á einstaklinginn! Við erum að sóa fjármunum með núverandi nálgun og auka á vanlíðan fólks. Í glænýrri bók Hugaraflsfélaga, Boðaföll, nýjar nálganir í sjálfsvígsforvörnum, kemur fram sterkt ákall eftir breyttri nálgun í geðheilbrigðisþjónustu. Við viljum að vandinn sé skoðaður heildrænt og að horft sé á einstaklinginn í samhengi við umhverfi sitt og samfélag. Mannréttindi og mannvirðing þarf að vera leiðarljós á öllum stigum þjónustu og útrýma þarf öllum beinum og óbeinum þvingunum. Við styðjum fólk ekki til þess að velja lífið með því að skerða mannréttindi þess og taka af því völdin yfir eigin lífi. Þessar breytingar sem kallað er eftir í bókinni eru í fullu samræmi við tilmæli Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) og Sameinuðu þjóðanna. Hvað þarf að gerast til þess að farið verði eftir þessum tilmælum alþjóðastofnana og ákalli okkar sem höfum reynslu af andlegri þjáningu og þjónustu geðheilbrigðiskerfisins?

Eftir hverju erum við að bíða?

Höfundar eru Hugaraflsfélagar og tvær af höfundum bókarinnar Boðaföll, nýjar nálganir í sjálfsvígsforvörnum.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×