Lífið

Túrtappi tryggði sigur í fyrsta ein­vígi Kviss

Elma Rut Valtýsdóttir og skrifa
Lið Þróttar og Tindastóls mættust í fyrsta þætti af nýrri þáttaröð af spurningaþættinum Kviss.
Lið Þróttar og Tindastóls mættust í fyrsta þætti af nýrri þáttaröð af spurningaþættinum Kviss.

Fyrsti þáttur spurningaþáttarins Kviss fór fram á laugardaginn. Þar mættust Tindastóll og Þróttur í stórskemmtilegri viðureign. Lið Tindastóls skipa fjölmiðlamaðurinn og skemmtikrafturinn Auðunn Blöndal og leikkonan Vivian Ólafsdóttir. Lið Þróttar samanstendur af söngkonunni Bríeti og leikaranum Birni Hlyni.

Allir eiga keppendur það sameiginlegt að birtast á einn eða annan hátt í kvikmyndinni Leynilöggan.

Þróttur stóð uppi sem sigurvegari í síðustu þáttaröð af Kviss en þá voru það samfélagsmiðlastjarnan Sólrún Diego og skemmtikrafturinn Sóli Hólm sem skipuðu lið Þróttar. Það er því óhætt að segja að þau Bríet og Björn Hlynur hafi verið undir pressu að verja titilinn.

Hér fyrir neðan má sjá brot úr fyrsta þættinum.

Þegar staðan var 22-21 fyrir Þrótti var farið í liðinn Þrjú hint þar sem þrjú stig eru veitt fyrir rétt svar við spurningu. Lið Þróttar var því aðeins einu réttu svari frá sigri.

Spurt var um hlut sem hefur verið notaður af ólíkum menningarheimum í þúsundir ára. Hluturinn birtist í kvikmyndinni She's the Man ásamt því að geimfarinn Sally Ride tók hlutinn með sér út í geim.

Liðin höfðu giskað á brjóstahaldara, dömubindi og titrara þegar Bríet kom með rétta svarið, túrtappa, sem tryggði Þrótti sæti í 8-liða úrslitum.

Næsta laugardag keppa áhrifavaldaparið Gói Sportrönd og Tinna BK fyrir hönd Hamars og söngvararnir Friðrik Ómar og Matti Matt fyrir hönd Dalvíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.