Skoðun

Fram­sókn hefur brugðist fram­tíðinni

Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar

Ráðherrar Framsóknarflokksins hafa ítrekað básúnað um ágæti sinna starfa á kjörtímabilinu en þeir eru fátt annað en frasar án innihalds.

Lengt fæðingarorlof hljómar vel í orði. Þegar frumvarpið kom fram stóð til að lengja fæðingarorlofið upp í 12 mánuði, en stytta tökutíma úr 24 mánuðum niður í 18, engin frjáls skipting milli foreldra og réttur einstæðra foreldra var ekki tryggður. Lokaniðurstaðan var að tökutíminn hélt sér og frjáls skipting var gefin á þann veg að 4,5 mánuðir voru eyrnamerktir foreldri en afganginn mátti framselja milli foreldra.

Vandinn við lengingu fæðingarorlofs er sá að þessi aðgerð ræðst ekki að rótum vandans og eykur en frekar bilið milli barna tekjulágra og tekjuhárra foreldra. Raunin er sú að margir foreldrar hafa ekki kost á því að nýta sér þessa lengingu, vegna þess að foreldri sem lifir ekki á lágmarkslaunum, lifir alls ekki á 80% af þeim tekjum eins og reglugerð fæðingarorlofssjóðs kveður á um. Það er ef að foreldrar eru svo heppnir að fá yfirleitt greiðslur úr fæðingarorlofssjóði, en námsmenn, fólk í óreglulegri vinnu og fólk í láglaunavinnu getur oft ekki nýtt sér þennan rétt vegna tregðu í regluverki fæðingarorlofssjóðs. Þessi breyting hentaði bara fólki í vel launaðri dagvinnu og hagsmunir barna voru hafðir að engu. Þetta er allt ágæti Ásmundar Einars og hans verka, að auka en frekar lífsgæðabil milli barna tekjulágra og tekjuhárra foreldra.

Íslenskt menntakerfi á undir högg að sækja. Í tíð Lilju Alfreðsdóttur hefur til dæmis verið tekið upp eitt leyfisbréf kennara. Sem kennaranema þykir mér það vissulega heillandi hugmynd að læra að verða grunnskólakennari en geta unnið einnig í leik- og framhaldsskóla, en á þessu eru ákveðnir vankantar. Félag framhaldsskólakennara sagði til dæmis að lögin gætu orðið til þess að draga úr menntunar- og gæðakröfum sem gerðar eru til kennara. Það skýtur skökku við, að á sama tíma og við mælumst námslega illa í öllum alþjóðlegum samanburði eigi að grípa til aðgerða sem skerta gæði náms á Íslandi.

Lilja kynnti til leiks rafræna ferilbók í byrjun árs 2018, aðgerð sem átti meðal annars að fjölga iðnmenntuðum í landinu og efla iðnnám. Rafræna ferilbókin hefur verið tekin í notkun, en hvar er efling iðnnáms? Formaður Samiðnar, sambands iðnfélaga benti til dæmis á þá alvarlegu stöðu að 700 umsækjendur fái ekki inngöngu í iðnnám og að 18 ára og eldri eigi nánast engan möguleika á að komast í iðnnám. Það dugir ekki að tala bara um mikilvægi iðnnáms, það þarf að bregðast við og koma hlutum í verk.

Það er eitt í orði og annað á borði. Mismunun barna eftir efnahag foreldra, aðgerðir gegn gæðum íslensks menntakerfis og stöðnun í iðnmenntun. Þetta er framtíðin sem Framsókn býður ungu fólki og öllu fólki í landinu upp á. Það er langt síðan framsókn hætti að vera samvinnuflokkur. Það er langt síðan framsókn hætti að vinna fyrir alla í þjóðfélaginu og það er langt síðan framsókn hætti að sækja fram.

Höfundur er foreldri, kennaranemi og skipar 3.sæti á J lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×