Erlent

Endur­ræsing sím­tækja geti gert síma­þrjótum erfiðara fyrir

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Í handbók starfsmanna þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna er mælt með því að starfsfólk endurræsi símana sína að lágmarki einu sinni í viku.
Í handbók starfsmanna þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna er mælt með því að starfsfólk endurræsi símana sína að lágmarki einu sinni í viku. Getty/Sean Gallup

Fulltrúi leyniþjónustunefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings hefur deilt ráði sem á að gera óprúttnum aðilum erfiðara fyrir brjótast inn í síma og stela upplýsingum. Ráðið er athyglisvert fyrir þær sakir að það gæti ekki verið einfaldara.

Angus King, fulltrúi leyniþjónustunefndarinnar, deildi ráðinu á öryggisfundi með starfsfólki sínu. Á stafrænum tímum eins og við lifum á, þar sem síma- og tölvuþrjótar leynast víða, mætti ætla að ráðið fæli í sér flóknar aðgerðir - en svo er ekki.

Ráð Kings felst einfaldlega í því að slökkva á símanum og kveikja á honum aftur.

Í handbók starfsmanna þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna er mælt með því að starfsfólk endurræsi símana sína að lágmarki einu sinni í viku.

Patrick Wardle, öryggissérfræðingur hjá stofnuninni segir síma vera eins konar stafrænar sálir. Þeir eru nánast alltaf við hönd og geyma gífurlegt magn persónulegra og viðkvæmra upplýsinga sem óprúttnir aðilar gætu notfært sér. Það er til að mynda hægt að kveikja á myndavél og hljóðnema símans og fylgjast með staðsetningu.

Breyttar aðferðir síma- og tölvuþrjóta

Tölvu- og símaþrjótar eru ekki undanskildir þeirri stafrænu þróun sem hefur átt sér stað síðustu ár og áratugi. Hér áður fyrr sendu þeir gjarnan hlekk sem eigandi símans þurfti að smella á til þess að þeir fengju aðgang að tækinu. Í dag virðast þrjótarnir geta fengið aðgang að tækinu án nokkurra afskipta eigandans.

Þessar nýju aðferðir símaþrjótanna virðast þó ráða illa við það að símarnir séu endurræstir. Þrjótunum þykir það þó eflaust ekki stór galli, þar sem sárafáir hafa tileinkað sér það að endurræsa símana sína reglulega.

Það skal þó tekið fram að það að endurræsa símann getur ekki komið alfarið í veg fyrir að hægt sé að brjótast inn í hann. Það getur hins vegar gert jafnvel reyndustu þrjótum erfiðara fyrir, bæði að brjótast inn og að stela gögnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×