Innlent

Sviptur veiðileyfi eftir að brottkast náðist á drónaupptöku

Kristín Ólafsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa
Áhöfnin varð uppvís að brottkasti á 72 bolfiskum, aðallega þorski.
Áhöfnin varð uppvís að brottkasti á 72 bolfiskum, aðallega þorski. Vísir/Vilhelm

Fiskistofa svipti bát veiðileyfi í tvær vikur fyrr í mánuðinum vegna stórfellds brottkasts. Þetta er í fyrsta sinn sem bátur er sviptur leyfi vegna brottkasts eftir drónaeftirlit.

Fiskistofa varð vör við brottkastið á skipinu, Bergvík GK 22, við eftirlit 28. apríl síðastliðinn. Notast var við dróna með áfastri myndavél við eftirlitið og upptökubúnaður virkjaður eftir að eftirlitsmenn urðu varir við brottkast áhafnar. 

Elín Björg Ragnarsdóttir sviðsstjóri veiðieftirlits hjá Fiskistofu segir að stofnunin meti brottkastið í umræddu tilviki stórfellt.

„Þar var kastað fyrir borð að minnsta kosti 72 bolfiskum, þorski aðallega, á um fjörutíu mínútna tímabili sem eftirlitið stóð yfir og það teljum við vera talsvert brottkast. Þetta eru um tveir fiskar á mínútu af þorski,“ segir Elín.

„Við erum að beita drónunum bæði hér nær landi og við erum einnig farin að beita drónunum á togaraslóðum, þannig að fyrstu málin varðandi brottkast á togurum eru að koma inn á borð hjá okkur.“

Skipið var svipt veiðileyfi í tvær vikur, frá öðrum júlí til fimmtánda júlí. Elín segir að forsvarsmenn viðkomandi skips hafi áður fengið leiðbeiningar vegna brottkasts. Ekki hafi verið hægt að grípa til vægari aðgerða en sviptingar í þessu tilviki. Þá sé óþægilega mikið um brottkast að mati stofnunarinnar, sem óskað hafi eftir samstarfi við fyrirtæki í sjávarútvegi til að berjast gegn slíkri umgengni við auðlindina.

„Því við verðum að hafa það í huga að brottkast skaðar hagsmuni allra sem hafa hag af þessari ábyrgu nýtingu auðlindarinnar og þess vegna er samstaða um að þessi hegðun verði ekki liðin. hún er lykillinn að því að vernda þessa hagsmuni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×