Innlent

Ekki ástæða til að aðhafast vegna myndbands óskráðrar ferðaskrifstofu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sjáskot úr umræddu myndbandi.
Sjáskot úr umræddu myndbandi. skjáskot

Ekki er talin ástæða til að aðhafast vegna utanvegaaksturs sem sjá má á myndbandi sem meint ferðaskrifstofa að nafninu Morii tours birti á Twitter, að mati sérfræðings hjá Umhverfisstofnun. Svo virðist sem að heimasíðu Morii tours hafi verið eytt eftir umfjöllun um myndbandið.

Stundin greindi frá tilvist myndbandsins í vikunni en því hefur nú verið eytt af Twitter. Myndbandið má sjá hér að neðan, en þar sjást þrír einstaklingar við gígbarm Rauðuskálar í grennd við Heklu. Sitja þeir ofan á jeppa sem augljóslega hefur verið ekið upp að gígnum.

Klippa: Utanvegaakstur Morii tours

Texti sem fylgir myndbandinu gefur til kynna að þeir sem birtu það telji sig hafa fundið áður óþekktan stað á Íslandi.

Í samtali við Vísi segir Daníel Freyr Jónsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, að stofnunni hafi borist ábendingar um utanvegaaksturinn og að málið hafi verið tekið til skoðunar. Stofnunin muni hins vegar ekki taka málið lengra.

Rauðaskál er í Rangárþingi ytra.Mynd/Map.is

Líklegt sé að umræddir aðilar hafi elt önnur för að gígnum, það sé ekki óalgengt þó að enginn merktur vegur gangi upp á gíginn, heldur aðeins að honum. Segir Daníel ljóst að þarna þurfi að afmarka betur aðgengi að gígnum til þess að fyrirbyggja utanvegaakstur á svæðinu.

Í frétt Stundarinnar segir að Morii tours hafi auglýst sjö daga pakkaferðir til Íslands á um sex þúsund dollara á mann, tæpar 750 þúsund krónur, sem hægt hafi verið að bóka á vef fyrirtækisins. Í frétt Stundarinnar segir hins vegar að Ferðamálastofu hafi ekki borist neinar umsóknir um leyfi til að starfrækja ferðaskrifstofu frá Morii tours hér á landi, líkt og skylda er sé ætlunin að selja pakkaferðir.

Athygli vekur að svo virðist sem sé búið að eyða Instagram-síðu hinnar meintu ferðaskrifstofu sem auglýst er á Twitter-síðu hennar, auk þess sem að tengill sem finna má á Twitter-síðunni sem vísar á heimasíðu Morii Tours skilar eingöngu villu, sé smellt á tengilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×