Viðskipti innlent

Íbúfen, Panodil og Paratabs til sölu í Staðarskála

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vegfarendur geta nálgast lausasölulyf í Staðarskála.
Vegfarendur geta nálgast lausasölulyf í Staðarskála. Vísir/Vilhelm

N1 hefur hafið sölu lausasölulyfja í Staðarskála í Hrútafirði. Hingað til hafa vegfarendur um þjóðveg 1 þurft að fara tugi kílómetra til að sækja þessa þjónustu.

Það vakti athygli á dögunum þegar Samkaup hófu sölu á lausasölulyfjum í þremur verslunum félagsins á Flúðum, Laugavatni og Fáskrúðsfirði. Nú verður hægt að fá lyf í Staðarskála sem er viðkomustaður fjölmargra á þjóðvegi 1.

„Við erum auðvitað mjög ánægð með að geta boðið viðskiptavinum okkar, íbúum í Hrútafirði og nærsveitum, upp á þessar mikilvægu vörur, en til þessa hafa lausasölulyf verið ófáanleg nema á Hvammstanga, sem er í 34 kílómetra fjarlægð eða í Borgarnesi í 90 kílómetra fjarlægð,“ segir Jón Viðar Stefánsson, forstöðumaður verslunarsviðs N1, í tilkynningu.

„Þegar mest er að gera hjá okkur koma allt að 7.000 manns í Staðarskála á dag og það er okkar hlutverk að þjónusta þann hóp sem allra best. Að geta nú boðið upp á lausasölulyf á borð við Panodil, Paratabs, Íbúfen og Lóritín, svo dæmi séu tekin, er frábært og algjörlega nauðsynlegt,“ segir Jón Viðar.

Salan á lausasölulyfjunum hófst í byrjun júlí og hafa viðtökur að sögn Jóns Viðars verið með eindæmum góðar. Ljóst sé að um þarfa viðbót við vöruúrvalið í þjónustustöðinni í Staðarskála sé að ræða.

Staðarskáli hefur verið viðkomustaður á hringveginum frá árinu 1960. Auk lausasölulyfjanna má nefna fjölgun rafhleðslustöðva á lóðinni en þar er nú hægt að hlaða átta bíla, auk átta Tesla bifreiða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×