Lífið

Býður fram krafta sína í brekku­sönginn: „Það er kveikt á símanum“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Margrét er meira en tilbúin til þess að spila á harmónikkuna fyrir þjóðhátíðargesti.
Margrét er meira en tilbúin til þess að spila á harmónikkuna fyrir þjóðhátíðargesti. Vísir/Sigurjón

Margrét Arnardóttir harmónikkuleikari kveðst meira en tilbúin að taka brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár.

Fréttastofa rakst á Margréti á förnum vegi í gær, og sagðist hún þegar hafa látið Þjóðhátíðarnefnd vita af áhuga sínum á verkefninu. Hún geti spilað hin ýmsu íslensku lög, hvort sem það eru þjóðhátíðarlög eða önnur.

Aðspurð hvort hún ætlaði einnig að taka að sér að leiða sönginn, samhliða harmónikkuspilinu, stóð ekki á svörum. Hún hefur hugsað sér að fá söngkonuna Sölku Sól Eyfeld til að syngja með sér. 

Margrét hefur þegar verið nefnd í samhengi við brekkusönginn, í umfjöllun Fréttablaðsins um mögulega listamenn sem leitt gætu sönginn. Meðal þeirra sem komust einnig á blað þar var Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, en hann hefur hafnað því að taka við brekkusöngnum. Segir raunar að hvorki honum né Þjóðhátíðargestum væri nokkur greiði gerður með því.

Auk þess að spjalla stuttlega við fréttastofu um áhuga sinn á verkefninu tók Margrét lagið, líkt og sjá má hér að neðan. Hún er öll af vilja gerð og segir að nú vanti aðeins skipuleggjendur hátíðarinnar að borðinu. Til Þjóðhátíðarnefndar er hún með einföld skilaboð:

„Það er kveikt á símanum.“

Eins og greint hefur verið frá mun Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, ekki koma fram á hátíðinni. Fjöldi nafnlausra frásagna af meintu ofbeldi og áreitni af hans hálfu hafa verið birtar á samfélagsmiðlum að undanförnu. Á mánudag sendi Þjóðhátíðarnefnd frá sér tilkynningu um að Ingólfur kæmi ekki fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.