Erlent

Enn fjölgar þeim sem finnast undir rústum blokkarinnar í Surfsi­de

Eiður Þór Árnason skrifar
Holur voru boraðar í þá veggi sem stóðu eftir og sprengiefni komið fyrir til að jafna leifarnar við jörðu.
Holur voru boraðar í þá veggi sem stóðu eftir og sprengiefni komið fyrir til að jafna leifarnar við jörðu. AP/Al Diaz

Þrjú lík hafa fundist til viðbótar undir rústum íbúðablokkarinnar sem hrundi fyrirvaralaust í bænum Surfside á Flórída fyrir rúmri viku. Er heildartala látinna nú komin í 27 en 118 íbúa er enn saknað og er talið ólíklegt að nokkur finnist á lífi.

Leitarflokkar fundu líkin þrjú á svæði sem hafði áður verið óaðgengilegt. Leifar byggingarinnar voru jafnaðar við jörðu í gær en áður var talið óöruggt að leita á umræddu svæði vegna óstöðugleika þeirra álma sem eftir stóðu.

Ein álma Champlain-suðurturnanna, þrettán hæða íbúðablokkar í bænum Surfside nærri Miami, hrundi aðfaranótt laugardagsins 24. júní. Ákveðið var að flýta niðurrifi byggingarinnar vegna hitabeltisstormsins Elsu sem stefnir nú á strendur Flórída og einnig til að stækka mögulegt leitarsvæði. 

Var gert hlé á björgunaraðgerðum vegna þessa en upphaflega stóð til að niðurrif færi fram seint í júlí. Niðurrifið í gær gekk sem skyldi og féll byggingin ekki á eldri rústir. Í kjölfarið var leitarflokkum leyft að hefja leit á ný, að því er fram kemur í frétt ABC

Fjölmargir hafa gefið upp alla von um að finna ástvini sína á lífi undir rústunum. AP/Carl Juste

Reikna með að finna fleiri

Að sögn Ron DeSantis, ríkisstjóra Flórída, má líklega finna mörg svefnherbergi í þeim hluta sem áður var óaðgengilegur leitar- og björgunarliði. Fjölmargir íbúar voru sofandi þegar hörmungarnar áttu sér stað um miðja nótt.

Verkfræðingar sem hafa kannað rústirnar eða skoðað myndir af þeim telja mögulegt að byggingin hafi verið gölluð. Ekki hafi verið notað eins mikið af steypustyrktarjárni í grunn hennar eins og gert var ráð í teikningum.

Sérfræðingur sem bæjaryfirvöld í Surfside fengu til þess að rannsaka hrunið staðfesti við New York Times að merki séu um að minna stál hafi verið notað til að styrkja burðarsúlur í bílakjallara en gert var ráð fyrir. Rannsókn á hruninu sé þó á frumstigum.


Tengdar fréttir

Vís­bendingar um galla í blokkinni sem hrundi

Sérfræðingar sem hafa skoðað rústir íbúðablokkarinnar á Surfside á Flórida sem hrundi í síðasta mánuði sjá merki um galla í grunni hennar. Að minnsta kosti 24 eru látnir en 121 er enn saknað og óhugsandi er talið að nokkur finnist á lífi.

Björgunar­að­gerðum hætt í bili og húsið verður rifið

Leit að þeim sem saknað er í rústum fjölbýlishússins sem hrundi í bænum Surfside á Flórída þann 24. júní hefur verið hætt tímabundið, þar sem rífa á það sem eftir stendur af húsinu. Enginn hefur fundist á lífi í rústunum frá því nokkrum klukkutímum eftir að byggingin hrundi.

Sjö ára stúlka fannst látin í rústunum

Sjö ára gömul stúlka fannst látin í rústum blokkar í Miami sem hrundi fyrirvaralaust í bænum Surfside á Flórída. Stúlkan var ein tveggja fórnarlamba sem fundust í rústunum í gærkvöldi, tveimur vikum eftir að blokkin hrundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×