Erlent

Einn látinn og hátt í hundrað saknað á Flórída

Kjartan Kjartansson skrifar
Þegar birti af degi varð umfang hamfaranna í Champlain-turninum í Surfside ljóst. Hátt í hundrað manna er enn saknað.
Þegar birti af degi varð umfang hamfaranna í Champlain-turninum í Surfside ljóst. Hátt í hundrað manna er enn saknað. AP/Amy Beth Bennett/South Florida Sun-Sentinel

Að minnsta kosti einn er látinn eftir að hluti tólf hæða íbúðablokkar hrundi í bænum Surfside nærri Miami á Flórída í nótt. Tæplega hundrað manna er enn saknað og er óttast að tala látinna eigi eftir að hækka töluvert.

Talið er að fjöldi fólks sé enn fastur í rústum Champlain-turnanna. Björgunarmenn hafa náð tugum íbúa úr rústunum og leita fleiri eftirlifenda, að sögn AP-fréttastofunnar. Unnið var að því að bjarga barni sem sat fast en talið er að foreldrar þess hafi farist. Taka þurfti fótinn af konu til að losa hana úr brakinu.

Ekki er ljóst hversu margir voru inni í byggingunni þegar hún hrundi um klukkan hálf tvö í nótt að staðartíma. Í blokkinni býr fólk bæði allt árið um kring og hluta úr ári. Ekki er haldið utan um hvenær eigendurnir eru á staðnum. Ræðisskrifstofa Argentínu í Miami hefur staðfest að níu Argentínumanna sé saknað.

Miami Herald eftir eftir lögreglunni í Miami-Dade-sýslu að tilkynnt hafi verið um 99 manns sem sé saknað eftir hrunið. Fimm íbúðir voru í hluta blokkarinnar sem hrundi. Íbúar í þeim hluta blokkarinnar sem enn stendur hafa yfirgefið heimili sín. Byggingin er sögð um fjörutíu ára gömul.

Ekki liggur fyrir hvað olli því að blokkarálman hrundi. Upptaka úr öryggismyndavél sýndi að miðja byggingarinnar virtist hrynja fyrst og riðaði þá sá hluti hennar sem stendur næst sjónum til falls. Hrundi sá hluti skömmu síðar þannig að mikið rykský lagði yfir nágrennið.

Framkvæmdir eru sagðar hafa staðið yfir á þaki hússins en Charles Burkett, borgarstjóri í Surfside, segist ekki sjá hvernig þær hefðu getað átt þátt í að blokkin hrundi.

Rannsókn sem var gerð í fyrra leiddi í ljós að byggingin hefur verið að sökkva frá 10. áratugnum, að því er kemur fram í frétt USA Today.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×