Lífið

GDRN ljáir eld­fjallinu Kötlu rödd sína

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN fer með aðalhlutverk í Netflix-seríunni Kötlu og ljáir eldfjallinu nú einnig rödd sína í nýju tónverki.
Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN fer með aðalhlutverk í Netflix-seríunni Kötlu og ljáir eldfjallinu nú einnig rödd sína í nýju tónverki.

Högni Egilsson og Netflix hafa sameinað krafta sína í tónverki í tengslum við þáttaröðina Kötlu. Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN ljáir eldfjallinu rödd sína í tónverkinu.

Til að tengjast eldfjallinu rýndu tónlistarmaðurinn Högni Egilsson og eldfjalla- og jarðskjálftafræðingurinn Kristín Jónsdóttir í gögn um skjálftavirkni eldfjallsins. Tjáningar Kötlu eru settar fram á ljóðrænan og músíkalskan hátt til að varpa sýn á alræmda eldfjallið og Netflix-þáttaröðina.

„Okkur var stillt saman af Netflix vegna þess að ég gerði tónlistina við þættina Kötlu og þeim langaði til þess að finna nýtt sjónarhorn á kynningu þáttanna,“ segir Högni um samstarfið. Hann segist hafa orðið stjörnustjarfur þegar hann komst að því að Kristín Jónsdóttir væri jarðskjálftafræðingurinn sem hann skyldi vinna með. 

„Kristín Jónsdóttir sem er búin að vera í fréttunum alla daga? Hún er stjarna! Hún er þjóðargersemi,“ 

voru viðbrögð Högna.

Túlka skjálftavirkni með söng

Söngkonan GDRN sem fer með aðalhlutverk í þáttunum, túlkar innri rödd Kötlu í tónverkinu. Hún segir sögu sem lýsir samskiptum fólks og náttúru, í gegnum ljóð samið af Högna og Andra Snæ Magnasyni.

Það er hinn verðlaunaði kammerkór Cantoque sem er GDRN til halds og trausts í verkinu. Söngvarar kórsins eru átta og túlka átta mismunandi svæði eldfjallsins sem öll hafa sína eigin jarðskjálftatíðni. 

„Við tókum þessar tíðnir og breyttum þeim yfir í músíkalska tjáningu. Jarðskjálftavirknin er í raun samtal á milli þessara svæða - mismunandi raddir,“ segir Högni.

Tónlistarmaðurinn Högni Egilsson samdi tónlist fyrir Netflix-seríuna Kötlu og hefur nú samið tónverk sem byggir á virknigögnum eldfjallsins.

Högni og Kristín skoðuðu virknigögn Kötlu tuttugu ár aftur í tímann við gerð tónverksins. Högni segir gögnin lýsa því hvernig jörðin hreyfir sig og hvernig Katla dansar og hvað hún er að segja.

„Við lítum á þetta verk sem upphafið á nýju tímabili - listaverk í leit af samhljómi fólks og náttúru sem fær okkur til að hlusta, finna og endurspegla. Jafnvel frumspekilegt rými þar sem maður og eldfjall sameinast,“ segir Högni.

Átta manna kammerkórinn Cantoque túlkar átta mismunandi svæði eldfjallsins sem öll hafa sína eigin jarðskjálftatíðni.

Katla geti ekki haldið í sér lengur

Kristín hefur verið áberandi síðustu mánuði vegna eldgossins í Geldingadölum. Hún segir að þó svo þetta sé allt hluti af sama stóra kerfinu, þá muni gosið í Geldingadölum ekki létta undir því sem koma skal frá Kötlu.

„Katla er svo hættulegt eldfjall og það er svo langt síðan það gaus þarna síðast og það kemur að því. Við vitum það að hún getur ekki haldið í sér lengur,“ 

segir Kristín.


Tengdar fréttir

Birta fyrstu stikluna úr Kötlu

Fyrsta stiklan úr Kötlu, fyrstu íslensku þáttaröðinni sem framleidd er fyrir Netflix, hefur verið birt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.