Skoðun

Öflug og fjöl­breytt þjónusta við aldraða

Svandís Svavarsdóttir og Elín Oddný Sigurðardóttir skrifa

Með fjölgun aldraðra stöndum við frammi fyrir þeirri áskorun að mæta þjónustuþörfum stækkandi hóps. Það er auðvitað fagnaðarefni að við lifum lengur og sífellt fleiri lifa við góða heilsu lengur en það er á sama tíma mikilvægt að leggjast á eitt um að auka þjónustuframboð við aldraða. Við þurfum að mæta fólki þar sem það er statt af virðingu, tryggja að þjónustan sé fjölbreytt og standist gæðaviðmið.

Samstarf heilbrigðisráðuneytis og Reykjavíkurborgar hefur gengið afar vel á síðustu árum, auk þess sem samþætting heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu hefur skilað eldra fólki heildstæðari og bættri þjónustu.

Margt jákvætt hefur áunnist en helst ber að nefna tvo þætti í tengslum við samstarf heilbrigðisráðuneytis og Reykjavíkurborgar á síðustu árum. Fyrir það fyrsta hefur náðst að efla samning um samþætta heimahjúkrun og heimaþjónustu sem undirritaður var í desember síðastliðnum. Í honum er lögð áhersla á að efla getu heimahjúkrunar Reykjavíkur til að nýta velferðartækni í auknum mæli, samhliða því að fjölga vitjunum, auka sérhæfingu og þverfaglega teymisvinnu t.d. með sérstöku endurhæfingarteymi í heimahúsum og hjartabilunarteymi. Mikil tækifæri liggja í velferðartækni og hefur Reykjavíkurborg sett á laggirnar sérstaka velferðartæknismiðju þar sem þróa má og prófa ýmsar lausnir sem nýta má í þjónustu við aldraða, bæði heimavið og á hjúkrunarheimilum. Árlegur kostnaður við samninginn nemur um tveimur milljörðum króna.

Svo er það í öðru lagi stofnun sérhæfðs öldrunarteymis Reykjavíkurborgar SELMU, en sú þjónusta miðar að því að styrkja innviði heimahjúkrunar og auka gæði þjónustunnar. Starfsemin er tvíþætt og felst í vitjunum í heimahús auk sérstakrar símaþjónustu og ráðgjafar og er markmiðið að með auknum stuðningi heim megi fækka sjúkrahúsinnlögnum aldraðra.

Uppbygging hjúkrunarheimila í borginni er mjög stórt mál. Bjóða þarf fleirum sem metin eru í þörf búsetu á hjúkrunarheimilum. Þörf fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila er mest á höfuðborgarsvæðinu. Í maí síðastliðnum skrifuðu heilbrigðisráðherra og borgarstjóri undir samning um byggingu hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík fyrir allt að 144 íbúa. Samhliða undirritun samnings um hjúkrunarheimili við Mosaveg var staðfest viljayfirlýsing um byggingu hjúkrunarheimilis fyrir allt að 200 íbúa á svæði við Ártúnshöfða í Reykjavík. Unnið er að vinnu við skipulagningu svæðisins og er stefnt að því að hægt verði að hefja verklegar framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili árið 2023. Ártúnshöfðaverkefnið er komið á framkæmdaáætlun um nauðsynlega uppbyggingu hjúkrunarrýma til ársins 2025 og verður fjármögnun þess tekin upp við gerð næstu fjármálaáætlunar.

Mikilvægt er að efla þá þjónustu sem fyrir er en bæta einnig þjónustu í heimahúsum og samþættingu þjónustu með áherslu á þverfaglegt samstarf. Samhliða nauðsynlegri uppbyggingu hjúkrunarheimila þarf að halda áfram að efla þjónustu heim, leggja áherslu á nýsköpun og velferðartækni og eflingu fagstétta í heilbrigðisþjónustu. Þannig sköpum við aldursvænt samfélag, fyrir okkur öll.

Svandís Svavarsdóttir er heilbrigðisráðherra og Elín Oddný Sigurðardóttir varaborgarfulltrúi Vinstri grænna í Reykjavík. 




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×