2 dagar í EM: Danir þurftu bara tvo sigurleiki til að vinna EM í „sumarfríinu“ sínu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2021 12:01 Danir fagna marki Kim Vilfort í úrslitaleiknum en hann kom þeim þá í 2-0. Brian Laudrup trúir því varla að danska liðið sé að verða Evrópumeistari. Getty/Shaun Botterill Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Evrópumeistaratitil Dana frá 1992 er einn sá óvæntasti í sögunni enda átti danska landsliðið aldrei að vera með. Danir voru ekki í pottinum þegar dregið var í riðli í úrslitakeppni EM í Svíþjóð 1992. Danska landsliðið varð að sætta sig við annað sætið í sínum riðli í undankeppninni eftir harða baráttu við Júgóslavíu. Júgóslavía átti því að vera í hópi þeirra átta þjóða sem myndu spila á EM 1992. Can #Denmark do it again at Euro 2020? #Euro2020 https://t.co/HpT1XqJkcx— GiveMeSport (@GiveMeSport) June 5, 2021 Júgóslavía missti hins vegar sæti sitt vegna borgarastyrjaldar í landinu þegar FIFA og UEFA gáfu það út 31. maí að þeir mættu ekki taka þátt í EM sem hófst aðeins tíu dögum seinna. Danir voru því óvænt komnir inn á EM og þó þeir væru ekki komnir í sumarfrí þá voru allir leikmenn liðsins á leið í sumarfrí og þurftu því að breyta sumarplönum sínum snögglega. Það voru reyndar ekki allir Danir til í slíkt. Michael Laudrup, besti leikmaður Dana og nýkrýndur Evrópumeistari meistaraliða með Barcelona, gaf ekki kost á sér og missti um leið af einu mesta ævintýri knattspyrnusögunnar. Bróðir hans Brian Laupdrup steig út úr skugga bróður síns og sló í gegn með félögum sínum. The story of Denmark winning EURO 1992 is outrageous :They failed to qualify for the tournament.They arrived with U21 kits.Everyone expected them to be sent packing immediately.Somehow, they triumphed : https://t.co/qikYD7eoaB @TSorensen1 #EURO2020 #OptusSport pic.twitter.com/9ZKmIfHoBM— Optus Sport (@OptusSport) June 5, 2021 Danir skoruðu reyndar ekki í fyrstu tveimur leikjum sínum í keppninni, gerðu markalaust jafntefli við England í fyrsta leik og töpuðu svo 1-0 á móti gestgjöfum Svía. Ekkert nema sigur dugðu Dönum í lokaleiknum á móti Frökkum. Danir unnu Frakka 2-1 og komust í undanúrslit á kostnað Frakka og Englendinga. Varamaðurinn Lars Elstrup skoraði sigurmarkið tólf mínútum fyrir leikslok. Í undanúrslitum unnu Danir svo Hollendinga í vítakeppni eftir 2-2 jafntefli í framlengdum leik. Peter Schmeichel varði víti frá Marco van Basten og dönsku leikmennirnir skoruðu úr öllum fimm spyrnum sínum. Í úrslitaleiknum vann danska liðið síðan 2-0 sigur á heimsmeisturum Þjóðverjar. Mörkin í úrslitaleiknum komu úr óvæntri átt en þau skoruðu John Jensen og Kim Vilfort. Iconic Peter Schmeichel was on another level during Denmark's Euro 1992 triumph.And it paved the way for a whole generation of Danish goalkeepers.Read about the incredible story of the Scandinavian nation's win at Euro 92 https://t.co/Bf6G4Lwufm#OptusSport #EURO2020 pic.twitter.com/rE8SYHeoX0— Optus Sport (@OptusSport) June 6, 2021 Þetta var fyrsta landsliðsmark Jensen í fimm ár og 45 landsleikjum en Vilfort hafði yfirgefið danska hópinn um tíma því sjö dóttir hans var með hvítblæði. Fjölskylda Vilfort sendi hann aftur til móts við danska liðið en Line Vilfort lést skömmu eftir keppnina. Besti maður Dana á mótinu var þó án ef markvörðurinn Peter Schmeichel sem varði margoft á úrslitastundu í keppninni. Frammistaða hans á mótinu er ein af þeim bestu í sögu keppninnar. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990. EM 2020 í fótbolta Tengdar fréttir 3 dagar í EM: Fimm þjóðir mæta taplausar til leiks á EM í sumar Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Ítalir og Belgar unnu alla leiki sína í undankeppninni en þrjár þjóðar töpuðu heldur ekki leik á leiðinni að tryggja sér farseðla á Evrópumótið. 8. júní 2021 12:00 4 dagar í EM: Ein frægasta vítaspyrna sögunnar vann EM fyrir 45 árum síðan Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Tékkar unnu sinn fyrsta og eina Evrópumeistaratitil árið 1976 en þá voru þeir líka með Slóvaka með sér í liði og eina ískalda vítaskyttu. 7. júní 2021 12:00 5 dagar í EM: „Húh-ið“ varð heimsfrægt eftir sigurinn ógleymanlega í París Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Víkingaklappið var á allra manna vörum eftir eftirminnilegan sigur Íslands á Austurríki í París 22. júní 2016. 6. júní 2021 12:01 6 dagar í EM: Þjóðverjar eina þjóðin í undanúrslitum þriggja síðustu EM Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Þýska landsliðið hefur komist alla leið í undanúrslit á síðustu þremur Evrópumótum en hafa ekki unnið Evrópumeistaratitilinn á þessari öld. 5. júní 2021 12:01 11 dagar í EM: Dauðariðilinn sem Ísland hefði verið í Evrópumótið í fótbolta karla er handan við hornið og í dag rýnum við í F-riðil mótsins, dauðariðilinn sem Íslendingar hefðu verið í hefðu þeir komist á EM. 31. maí 2021 12:01 Mest lesið Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Körfubolti Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Enski boltinn Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Fótbolti Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Enski boltinn Meistararnir lentu undir en unnu samt Enski boltinn Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Golf Áhorfendamet slegið í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Víkingur 0-1 | Gestirnir taka bronsið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Thuram skaut Inter í toppbaráttuna. „Áfram Breiðablik, það er það eina sem ég veit núna“ Einkunnir stórleiksins á Hlíðarenda: Telma og vörn Blika bar af Hrafnhildur Ása efnilegust og Telma hlaut gullhanskann „Ótrúlega stolt af hópnum hvernig við nálguðumst þetta tímabil“ „Þessi er klárlega mjög sérstakur“ „Agla María hélt liðsfund eftir þann leik og hvatti liðið áfram“ Pickford bjargaði stigi Valverde sá til þess að Real var ekki í vandræðum með Villareal Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Lið Hildar yfir gegn meisturunum í hálfleik en töpuðu með sjö Áhorfendamet slegið í úrslitaleiknum Uppgjörið: Þór/KA - Víkingur 0-1 | Gestirnir taka bronsið Þægilegt hjá Þrótti í Krikanum Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Pétur gerir tvær breytingar á liði Vals Lið Cecilíu jafnaði undir lokin og er enn taplaust Sandra María valin best „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Cole Campbell á bekknum hjá Dortmund „Finnst yfirleitt betra að spila fótbolta á tánum en hælunum“ Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Lokaumferðin rosalega 1991: Fjögur lið gátu orðið meistarar og mættust innbyrðis Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Nik fullur sjálfstrausts fyrir úrslitaleikinn Komdu þér í gírinn fyrir úrslitaleikinn „Við höfum líka mikið af vopnum í okkar búri“ Sjá meira
Danir voru ekki í pottinum þegar dregið var í riðli í úrslitakeppni EM í Svíþjóð 1992. Danska landsliðið varð að sætta sig við annað sætið í sínum riðli í undankeppninni eftir harða baráttu við Júgóslavíu. Júgóslavía átti því að vera í hópi þeirra átta þjóða sem myndu spila á EM 1992. Can #Denmark do it again at Euro 2020? #Euro2020 https://t.co/HpT1XqJkcx— GiveMeSport (@GiveMeSport) June 5, 2021 Júgóslavía missti hins vegar sæti sitt vegna borgarastyrjaldar í landinu þegar FIFA og UEFA gáfu það út 31. maí að þeir mættu ekki taka þátt í EM sem hófst aðeins tíu dögum seinna. Danir voru því óvænt komnir inn á EM og þó þeir væru ekki komnir í sumarfrí þá voru allir leikmenn liðsins á leið í sumarfrí og þurftu því að breyta sumarplönum sínum snögglega. Það voru reyndar ekki allir Danir til í slíkt. Michael Laudrup, besti leikmaður Dana og nýkrýndur Evrópumeistari meistaraliða með Barcelona, gaf ekki kost á sér og missti um leið af einu mesta ævintýri knattspyrnusögunnar. Bróðir hans Brian Laupdrup steig út úr skugga bróður síns og sló í gegn með félögum sínum. The story of Denmark winning EURO 1992 is outrageous :They failed to qualify for the tournament.They arrived with U21 kits.Everyone expected them to be sent packing immediately.Somehow, they triumphed : https://t.co/qikYD7eoaB @TSorensen1 #EURO2020 #OptusSport pic.twitter.com/9ZKmIfHoBM— Optus Sport (@OptusSport) June 5, 2021 Danir skoruðu reyndar ekki í fyrstu tveimur leikjum sínum í keppninni, gerðu markalaust jafntefli við England í fyrsta leik og töpuðu svo 1-0 á móti gestgjöfum Svía. Ekkert nema sigur dugðu Dönum í lokaleiknum á móti Frökkum. Danir unnu Frakka 2-1 og komust í undanúrslit á kostnað Frakka og Englendinga. Varamaðurinn Lars Elstrup skoraði sigurmarkið tólf mínútum fyrir leikslok. Í undanúrslitum unnu Danir svo Hollendinga í vítakeppni eftir 2-2 jafntefli í framlengdum leik. Peter Schmeichel varði víti frá Marco van Basten og dönsku leikmennirnir skoruðu úr öllum fimm spyrnum sínum. Í úrslitaleiknum vann danska liðið síðan 2-0 sigur á heimsmeisturum Þjóðverjar. Mörkin í úrslitaleiknum komu úr óvæntri átt en þau skoruðu John Jensen og Kim Vilfort. Iconic Peter Schmeichel was on another level during Denmark's Euro 1992 triumph.And it paved the way for a whole generation of Danish goalkeepers.Read about the incredible story of the Scandinavian nation's win at Euro 92 https://t.co/Bf6G4Lwufm#OptusSport #EURO2020 pic.twitter.com/rE8SYHeoX0— Optus Sport (@OptusSport) June 6, 2021 Þetta var fyrsta landsliðsmark Jensen í fimm ár og 45 landsleikjum en Vilfort hafði yfirgefið danska hópinn um tíma því sjö dóttir hans var með hvítblæði. Fjölskylda Vilfort sendi hann aftur til móts við danska liðið en Line Vilfort lést skömmu eftir keppnina. Besti maður Dana á mótinu var þó án ef markvörðurinn Peter Schmeichel sem varði margoft á úrslitastundu í keppninni. Frammistaða hans á mótinu er ein af þeim bestu í sögu keppninnar. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 í fótbolta Tengdar fréttir 3 dagar í EM: Fimm þjóðir mæta taplausar til leiks á EM í sumar Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Ítalir og Belgar unnu alla leiki sína í undankeppninni en þrjár þjóðar töpuðu heldur ekki leik á leiðinni að tryggja sér farseðla á Evrópumótið. 8. júní 2021 12:00 4 dagar í EM: Ein frægasta vítaspyrna sögunnar vann EM fyrir 45 árum síðan Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Tékkar unnu sinn fyrsta og eina Evrópumeistaratitil árið 1976 en þá voru þeir líka með Slóvaka með sér í liði og eina ískalda vítaskyttu. 7. júní 2021 12:00 5 dagar í EM: „Húh-ið“ varð heimsfrægt eftir sigurinn ógleymanlega í París Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Víkingaklappið var á allra manna vörum eftir eftirminnilegan sigur Íslands á Austurríki í París 22. júní 2016. 6. júní 2021 12:01 6 dagar í EM: Þjóðverjar eina þjóðin í undanúrslitum þriggja síðustu EM Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Þýska landsliðið hefur komist alla leið í undanúrslit á síðustu þremur Evrópumótum en hafa ekki unnið Evrópumeistaratitilinn á þessari öld. 5. júní 2021 12:01 11 dagar í EM: Dauðariðilinn sem Ísland hefði verið í Evrópumótið í fótbolta karla er handan við hornið og í dag rýnum við í F-riðil mótsins, dauðariðilinn sem Íslendingar hefðu verið í hefðu þeir komist á EM. 31. maí 2021 12:01 Mest lesið Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn Þurfti að leita til tannlæknis eftir vænan olnboga Körfubolti Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Enski boltinn Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Fótbolti Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Enski boltinn Meistararnir lentu undir en unnu samt Enski boltinn Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Golf Áhorfendamet slegið í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Víkingur 0-1 | Gestirnir taka bronsið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Thuram skaut Inter í toppbaráttuna. „Áfram Breiðablik, það er það eina sem ég veit núna“ Einkunnir stórleiksins á Hlíðarenda: Telma og vörn Blika bar af Hrafnhildur Ása efnilegust og Telma hlaut gullhanskann „Ótrúlega stolt af hópnum hvernig við nálguðumst þetta tímabil“ „Þessi er klárlega mjög sérstakur“ „Agla María hélt liðsfund eftir þann leik og hvatti liðið áfram“ Pickford bjargaði stigi Valverde sá til þess að Real var ekki í vandræðum með Villareal Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Lið Hildar yfir gegn meisturunum í hálfleik en töpuðu með sjö Áhorfendamet slegið í úrslitaleiknum Uppgjörið: Þór/KA - Víkingur 0-1 | Gestirnir taka bronsið Þægilegt hjá Þrótti í Krikanum Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Pétur gerir tvær breytingar á liði Vals Lið Cecilíu jafnaði undir lokin og er enn taplaust Sandra María valin best „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Cole Campbell á bekknum hjá Dortmund „Finnst yfirleitt betra að spila fótbolta á tánum en hælunum“ Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Lokaumferðin rosalega 1991: Fjögur lið gátu orðið meistarar og mættust innbyrðis Schmeichel lofsamar Landin: „Hugrakkasta fólk sem ég hef séð“ Nik fullur sjálfstrausts fyrir úrslitaleikinn Komdu þér í gírinn fyrir úrslitaleikinn „Við höfum líka mikið af vopnum í okkar búri“ Sjá meira
3 dagar í EM: Fimm þjóðir mæta taplausar til leiks á EM í sumar Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Ítalir og Belgar unnu alla leiki sína í undankeppninni en þrjár þjóðar töpuðu heldur ekki leik á leiðinni að tryggja sér farseðla á Evrópumótið. 8. júní 2021 12:00
4 dagar í EM: Ein frægasta vítaspyrna sögunnar vann EM fyrir 45 árum síðan Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Tékkar unnu sinn fyrsta og eina Evrópumeistaratitil árið 1976 en þá voru þeir líka með Slóvaka með sér í liði og eina ískalda vítaskyttu. 7. júní 2021 12:00
5 dagar í EM: „Húh-ið“ varð heimsfrægt eftir sigurinn ógleymanlega í París Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Víkingaklappið var á allra manna vörum eftir eftirminnilegan sigur Íslands á Austurríki í París 22. júní 2016. 6. júní 2021 12:01
6 dagar í EM: Þjóðverjar eina þjóðin í undanúrslitum þriggja síðustu EM Vísir telur niður í Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst 11. júní næstkomandi. Þýska landsliðið hefur komist alla leið í undanúrslit á síðustu þremur Evrópumótum en hafa ekki unnið Evrópumeistaratitilinn á þessari öld. 5. júní 2021 12:01
11 dagar í EM: Dauðariðilinn sem Ísland hefði verið í Evrópumótið í fótbolta karla er handan við hornið og í dag rýnum við í F-riðil mótsins, dauðariðilinn sem Íslendingar hefðu verið í hefðu þeir komist á EM. 31. maí 2021 12:01
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn
Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fram - Vestri 2-4 | Andri Rúnar með sýningu í sigri Vestra Íslenski boltinn