Tónlist

Fjármagnaði plötuna með „sponsaðasta“ myndbandi Íslandssögunnar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Screenshot 2021-05-26 at 20.25.43

Hipsumhaps sendi í dag frá sér nýtt tónlistarmyndband við lagið Meikaða. Myndbandið er stútfullt af auglýsingum en sveitin fór frumlegar leiðir til þess að fjármagna útgáfu væntarlegrar plötu Hipsumhaps. 

„Það lá beinast við að gera þetta myndband þegar að við byrjuðum að taka upp lagið. Þú ert ekki búinn að meika það fyrr en þú ert orðinn nógu stór prófíll til þess að selja auglýsingar,“ segir Fannar Ingi Friðjónsson söngvari um myndbandið í samtali við Vísi. 

„Auðvitað gerum við þá myndband sem er eitt stórt „product placement“. Feit pæling sem gekk upp. Lil Binni og crewið með þetta á hreinu. Og þetta endaði síðan á að vera mín leið til þess að fjármagna plötuna sem er snilld.“

Fannar segir að markmiðið með myndbandinu sé að selja vörur og koma hreyfingu á hagkerfið eftir erfiðan vetur. Sennilega sé þetta „sponsaðasta myndband Íslandssögunnar.“ Lagið er hresst og skemmtilegt. 

„Ég fíla innantóman glans og efnishyggju. Góðan húmor. You Wanted a Hit með LCD Soundsystem er geðveikt konsept lag. Pottþétt áhrif þaðan. Og klassaræmur á borð við Happy Gilmore og Wayne’s World.“

Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Hipsumhaps - Meikaða

„Platan kemur út á sunnudaginn og það er mitt stoltasta verk til þessa. Síðan ætla ég að gönna inn í sumarið með tónleikahaldi um allt land og njóta þess að vera til. Ég er búinn að meika það,“ segir Fannar að lokum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.