Erlent

Tvö börn létust í eldsvoða í Danmörku

Eiður Þór Árnason skrifar
Hobro er liggur við botn Mariager-fjarðar á norðanverðu Jótlandi.
Hobro er liggur við botn Mariager-fjarðar á norðanverðu Jótlandi. CC BY-SA 3.0/Frank Vincentz

Tvö börn á aldrinum sjö og ellefu ára létust í eldsvoða í Danmörku í nótt þegar eldur kviknaði í íbúðahúsi í Hobro á norðanverðu Jótlandi.

Greint er frá þessu á vef Ekstra Bladet en í yfirlýsingu frá lögreglu kemur fram að ekkert bendi til saknæms athæfis.

Tilkynning barst um eldsvoðann við Mariagervej í Hobro klukkan 1:36 í nótt að staðartíma. Þegar slökkvilið kom á vettvang var móðir barnanna og maki komin út úr húsinu en börnin tvö komust ekki út í tæka tíð.

Klukkan 2:45 hafði slökkvilið að mestu tekist að ná niðurlögum eldsins en svæðið var umlukið reyk. Viðbragðsaðilar voru enn á vettvangi í morgun en lítið hefur verið gefið upp um möguleg eldsupptök sem eru nú til rannsóknar. Að sögn Ekstra Bladet var maki móðurinnar fluttur á spítala í Álaborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×