Innlent

Björgunar­sveitir kallaðar út á Hvanna­dals­hnjúk

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Hópurinn er nú á leið niður en björgunarsveitarfólk er á leið upp á jökulinn til öryggis. 
Hópurinn er nú á leið niður en björgunarsveitarfólk er á leið upp á jökulinn til öryggis.  Hvannadalshnjúkur/RAX

Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út á Hvannadalshnjúk til þess að aðstoða þar gönguhóp sem er á leiðinni niður af jöklinum. 

Enginn í hópnum er slasaður en veðrið á jöklinum er orðið vont og vildi hópurinn hafa allan varann á segir upplýsingafulltrúi Landsbjargar.

Nær ekkert skyggni er á jöklinum, þar er mikil snjókoma og vindur. Nokkrir hópar eru á svæðinu að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, en aðeins einn hefur óskað eftir aðstoð.

Björgunarsveitarfólk á snjósleðum og Jeppum er á leið upp á jökulinn og nálgast nú hópinn, sem er að reyna að fikra sig niður af hnjúknum. Þá hefur verið óskað eftir að snjóbílar bætist í för.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×