Tíska og hönnun

„Búin að gráta nokkrum sinnum í þessu ferli“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Setustofan í Brú eftir breytingar.
Setustofan í Brú eftir breytingar. Skreytum hús

Soffía Dögg Garðarsdóttir tók í gegn setustofuna á áfangaheimilinu Brú lokaþættinum af Skreytum hús.

Áfangaheimilið Brú er búsetuúrræði fyrir fólk sem er að koma úr áfengis- og vímuefnameðferð. Á Brú eru 18 einstaklingsíbúðir þar sem fólk getur búið í allt að tvö ár eftir meðferð. Markmið er veita samfellda þjónustu og styrkja einstaklinginn til virkrar samfélasgþátttöku.

„Ég er bara þakklát fyrir að taka þátt í þessu. Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt og gefandi. Ég er búin að gráta nokkrum sinnum í þessu ferli en það er bara gott og fallegt líka,“ segir Soffía Dögg þegar verkefninu var lokið.

Setustofan er hugsuð fyrir fundi og til að íbúar geti styrkt félagsleg tengsl sín. Dúkurinn á gólfinu fékk að fjúka og Soffía Dögg töfraði fram einstaklega hlýlegt rými fyrir íbúa á metttíma.

Rýmið er strax komið í notkun og íbúar áfangaheimilisins nú þegar búnir að hittast í spila- og pitsuveislu og fleira. Lokaútkomuna má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús er hægt að finna frekari upplýsingar um breytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta rýminu.


Tengdar fréttir

Skreytum hús: Barnaherbergi breytt í unglingaherbergi

Jóhann Ingimarsson fékk draumaherbergið sitt í síðasta þætti af Skreytum hús. Jóhann er níu ára gamall og þráði ekkert heitar en að fá alvöru leikjastól og LED-ljósaborða í svefnherbergið sitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.