Lífið

Sigga Heimis í hönnunarkennslu í HR

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sigga Heimis er þekktur iðnhönnuður hér á landi og deilir hún nú sinni reynslu með nemendum HR.
Sigga Heimis er þekktur iðnhönnuður hér á landi og deilir hún nú sinni reynslu með nemendum HR.

Iðnhönnuðurinn Sigga Heimis var fengin til að kenna hönnun í vél- og orkutæknifræði við iðn- og tæknifræðideild Háskólans í Reykjavík.

Í náminu læra nemendur hönnun vélhluta út frá virkni, lögun, efni og sjálfbærni. Lögð er áhersla á skapandi hugsun og hvernig óvissa og óreiða hefur áhrif á val hönnunar.

„Við höfum verið með námskeið eða hönnunarkúrs síðustu mánuði þar sem við erum að blanda saman viðmóti, hönnun, umgengni og tækni. Markmiðið er að nemendur leysi flókin og opin hönnunarvandamál sem tengjast vélbúnaði og orkunýtingu og skilji skoranir sem felast í þverfaglegu hönnunarumhverfi,“ segir Sigga.

„Veruleikinn í dag er hreinlega þannig að það er svo mikil orkunotkun og þörf á orku og við erum ekki endilega vön á á Íslandi að þurfa að hugsa mikið um þetta. En þetta er stórt og er að verða stærra vandamál erlendis. Hér erum við sem sagt að virkja orku sem færi annars bara til spillis. Við erum að búa til vörur og við erum að leysa vandamál. Við erum að nálgast þetta verkefni dálítið frá sitt hvorri hliðinni og þetta er alveg frábær samvinna sem á sér stað. Nemendur eru búnir að standa sig alveg ótrúlega vel,“ segir hún enn fremur.

Bjuggu til klukku sem nýtir stöðuorkuna

„Við erum í hönnun hjá Siggu Heimis og við fengum það verkefni að búa til eitthvað inn á heimilinu sem framleiðir orku. Tilgangur þessa stóls sem við framleiddum er að vera með viðhaldshleðslu við síma þannig að það sé hægt að rugga sér og hlaða símann á meðan. Og hérna erum við búnir að græja botn með stillanlegum fótum til að breyta hreyfingum ruggsins,“ segir Heiðar Kristóbertsson nemandi um verkefnið sitt sem hann gerði ásamt Brynjólfi Árna samnemanda sínum.

Þeir Stefán Ingi og Adrian Sölvi bjuggu til klukku sem nýtir stöðuorkuna.

„Þegar þú opnar hurðina þá trekkist upp lóð sem hleður klukkuna. Þannig að þetta er í raun sjálftrekkjandi klukka. Við skárum út úr stáli öll tannhjól og klukkuna sjálfa, segir Adrian um þeirra verkefni.“

Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá nokkra nemendur í vél- og orkutæknifræði við iðn- og tæknifræðideild HR búa til skemmtileg hönnunarverkefni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.