Erlent

Ráðherra fékk hníf með rauðum slettum í pósti

Kjartan Kjartansson skrifar
Reyes Maroto, ferðamálaráðherra, sýnir mynd af hnífnum sem henni var sendur fyrir helgi. Hún hefur þegar kært sendandann.
Reyes Maroto, ferðamálaráðherra, sýnir mynd af hnífnum sem henni var sendur fyrir helgi. Hún hefur þegar kært sendandann. Vísir/EPA

Ferðamálaráðherra Spánar fékk hníf með rauðum slettum sendan í pósti en nokkrir stjórnmála- og embættismenn hafa fengið líflátshótanir undanfarna daga. Stjórnmálaflokkar af öllu pólitíska litrófinu hafa fordæmt hótanirnar sem eru til rannsóknar lögreglu.

Sósíalistaflokkur Spánar leiðir samsteypustjórn með vinstriflokknum Sameinaðar getum við. Í síðustu viku fengu Fernando Grande-Marlaska, innanríkisráðherra, Pablo Iglesias, leiðtogi Sameinaðar getum við, og María Gámez, yfirmaður þjóðvarðliðsins, morðhótanir í pósti.

Reyes Maroto, ferðamálaráðherra, greindi svo frá því í dag að henni hefði borist hnífur sem var útataður í rauðum slettum í pósti. Reuters-fréttastofan segir að hnífurinn hafi verið sendur ráðuneyti hennar á föstudag. Á pakkanum hafi verið heimilisfang til endursendingar.

„Þetta er alvarlegt. Við ættum að hafa áhyggjur því ég er ekki umdeild manneskja,“ sagði Maroto sem hefur verið iðnaðar-, viðskipta- og ferðamálaráðherra fyrir Sósíalistaflokkinn frá 2018.

Marlaska innanríkisráðherra tengdi hótanirnar við pólitíska skautun sem hefði leyft hatursorðræðu að blómstra á Spáni. Nefndi hann þó ekki hver gæti hafa staðið að hótununum.

„Það er ákveðin andlýðræðisleg stjórnmálaumræða við lýði sem við verðum að taka á af hörku,“ sagði hann og setti hótanirnar í samhengi við nýleg skemmdarverk sem voru unnin á vegglistaverki jafnréttissinna í Madrid og styttu af Francisco Largo-Caballero, fyrrverandi forsætisráðherra úr röðum sósíalista.

Spennan í spænskum stjórnmálum hefur farið vaxandi í aðdraganda héraðskosninga í Madrid í næstu viku. Slagorð Isabelu Díaz Ayuso, forseta sjálfstjórnarhéraðsins Madridar sem tilheyrir hægrisinnaða Lýðflokknum, er „kommúnismi eða frelsi“.

Iglesias býður sig fram gegn Díaz Ayuso í Madrid. Hann gekk út úr sjónvarpskappræðum á föstudagskvöld eftir að Rocío Monasterio, frambjóðandi hægriöfgaflokksins Vox, efaðist um að hótanirnar væru raunverulegar.

Róstursamt hefur verið í spænskum stjórnmálum undanfarin ár, ekki síst vegna meiriháttar spillingarmál Lýðflokksins, stærsta hægriflokk landsins, og sjálfstæðisbaráttu Katalóna. Erfiðlega hefur gengið að mynda samsteypustjórnir en frá 2015 til 2019 fóru fram fernar þingkosningar, þar af tvennar árið 2019.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×