Bíó og sjónvarp

Ólafur Darri við hlið Jamie Dornan í nýjum hasar­þáttum BBC og HBO Max

Eiður Þór Árnason skrifar
Ólafur Darri Ólafsson lék síðast í sjónvarpsþáttunum Ráðherrann.
Ólafur Darri Ólafsson lék síðast í sjónvarpsþáttunum Ráðherrann. Getty/Daniel Knighton

Ólafur Darri Ólafsson mun fara með eitt aðalhlutverka í spennuþáttunum The Tourist sem verða meðal annars sýndir á BBC og streymisveitunni HBO Max.

Mun Ólafur þar leika við hlið grísk-austurríska leikarans Alex Dimitriades og hins írska Jamie Dornan, sem gerði garðinn frægan í 50 gráum skuggum. Greint er frá þessu á vef Deadline

Er um að ræða sex þátta seríu sem skrifaðir eru af bræðrunum Harry og Jack Williams og framleiddir af fyrirtæki þeirra Two Brother Pictures fyrir breska ríkisútvarpið í samvinnu við HBO Max og fleiri aðila. 

Mun Ólafur Darri þar leika Bandaríkjamanninn Billy sem flækist inn í æsispennandi eltingarleik sem leggur grunninn að þessum gamansömu hasarþáttum. Dimitriades leikur Kostas, valdamikinn auðmann sem reynist vera með vafasöm viðskiptatengsl.

Þættirnir fjalla um Breta, leikinn af Jamie Dornan, sem vaknar til meðvitundar á spítala eftir að flutningabíll reyndi að keyra hann út af veginum í óbyggðum Ástralíu. Maðurinn hefur ekki hugmynd um hver hann er og þarf að rekja fortíð sína og nútíð áður en fjandmenn hans elta hann uppi og verða honum að bana.

Auk Ólafs, Dornan og Dimitriades fara Danielle Macdonald, Shalom Brune-Franklin og Hugo Weaving með hlutverk í þáttunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.