Lífið

Strákur í Sveinungsvík ætlar að verða bóndi og harmonikkuleikari

Kristján Már Unnarsson skrifar
Heimir Sigurpáll Árnason, þrettán ára bóndasonur í Sveinungsvík.
Heimir Sigurpáll Árnason, þrettán ára bóndasonur í Sveinungsvík. Arnar Halldórsson

Í Sveinungsvík sunnan Raufarhafnar rekur Árni Gunnarsson 550 kinda sauðfjárbú ásamt vélaútgerð. Árni tók við búskapnum af foreldrum sínum fyrir áratug og er fjórði ættliðurinn á jörðinni. Sonur hans segist ákveðinn í að verða sá fimmti.

Þegar við rennum í hlað eru Árni og þrettán ára gamall sonur hans, Heimir Sigurpáll, að saga stærðarinnar rekaviðardrumb niður í borðvið. Í gegnum aldirnar þótti Sveinungsvík með verðmætari jörðum vegna alls rekans sem barst hingað á fjörur norðan úr höfum alla leið frá Síberíu.

Sveinungsvík er í Svalbarðshreppi sunnan Raufarhafnar.Arnar Halldórsson

Sveinungsvík er meðal þeirra jarða sem heimsóttar eru í þættinum Um land allt á Stöð 2. Fjallað er um mannlíf fyrr og nú í víkunum í Svalbarðshreppi við vestanverðan Þistilfjörð. Árni er fráskilinn en sonurinn býr bæði hér og hjá móður sinni á Akureyri.

Feðgarnir segja okkur frá búskapnum í Sveinungsvík og pabbinn frá jeppasportinu. Sonurinn Heimir leikur fyrir okkur á harmonikku og okkur þykir hann ágætlega fær miðað við að hann er nýbyrjaður í námi á hljóðfærið. Strákurinn segist raunar ekki vera nútímamaður heldur fremur nítjándu- eða átjándualdar maður og alltaf hafa dáðst að torfbæjum.

Feðgarnir í Sveinungsvík, þeir Árni Gunnarsson og Heimir Sigurpáll.Arnar Halldórsson

„Aðrir hafa playstation og tölvu en ég hamar og nagla,“ segir hann eftir að hafa gengið með okkur um sveitabæinn sem hann er búinn að smíða. Hann velkist ekki í vafa um hvað hann ætlar að verða þegar hann verður stór.

„Bóndi og harmonikkuleikari,“ er svarið.

Hér má sjá sjö mínútna myndskeið úr þættinum:


Tengdar fréttir

Hafa enn hlunnindi af rekavið þótt varla komi spýta að landi

Þótt áratugir séu liðnir frá því rekaviður hætti að berast í stórum stíl að ströndum Íslands finnast enn bændur sem nýta þessi hlunnindi. Rætt var við bónda í fréttum Stöðvar 2 sem var að saga rekaviðardrumba niður í innanhússklæðningu.

Sumargleðin hjá Ragga Bjarna reyndist örlagarík

Í vinalegum víkum í Svalbarðshreppi sunnan Raufarhafnar stunda bændur sauðfjárrækt og hlunnindabúskap og saga enn niður rekavið. Eyðijarðir eru nýttar af afkomendum síðustu bænda til orlofsdvalar yfir sumartímann.

Á þessum bæ átti rekaviður stóran þátt í lífsafkomunni

Gamlar eyðijarðar geyma merkilegar minjar um horfna búskaparhætti, sem afkomendur síðustu bænda hlúa að. Þannig má víða á strandjörðum norðaustanlands vel sjá hvað nýting rekaviðar átti stóran þátt í lífsafkomu fólksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.