Innlent

Baldur kominn í höfn í Stykkishólmi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Baldur í höfn í Stykkishólmi nú á öðrum tímanum.
Baldur í höfn í Stykkishólmi nú á öðrum tímanum. Landhelgisgæslan

Breiðafjarðarferjan Baldur er komin í höfn í Stykkishólmi. Þar lenti hún skömmu fyrir klukkan tvö í dag eftir að hafa orðið vélarvana á Breiðafirði síðdegis í gær.

Varðskipið Þór dró Baldur að Stykkishólmi. Þar tók hafsögubáturinn Fönix við drættinum og kom Baldri til hafnar. Til að gæta fyllsta öryggis var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út.

Ferjan varð vélarvana mitt á milli Flateyjar og Stykkishólms um hálf þrjú leytið í gær. Fólkið sem fast var um borð í skipinu var þannig á sjó í rúman sólarhring.

Uppfært klukkan 14:14:

Gunnlaugur Grettisson framkvæmdastjóri Sæferða, sem gera út ferjuna, segir í samtali við fréttastofu að allir farþegar séu komnir frá borði. Hann segir fólk hafa sýnt málinu skilning en auðvitað hefði mikið ónæði af þessu hlotist.

Hér að neðan mátti fylgjast með því í beinni útsendingu þegar Baldri var komið til hafnar í Stykkishólmi.

Baldur varð vélarvana á Breiðafirði.Landhelgisgæslan

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

„Fólk var hrætt og það var sjóveikt“

Einar Sveinn Ólafsson starfandi verksmiðjustjóri hjá Íslenska kalkþörungafélaginu á Bíldudal er á meðal þeirra tuttugu farþega sem eru fastir um borð í Breiðafjarðarferjunni Baldri. Ferjan varð vélarvana mitt á milli Flateyjar og Stykkishólms um hálf þrjú leytið í gær.

Þrjú þyrluútköll á einum degi

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út þrisvar sinnum í gær og áhöfnin á varðskipinu Þór einu sinni.

Baldur í togi til Stykkishólms

Áhöfn rannsóknarskipsins Árna Friðfinnssonar er komin með ferjuna Baldur í tog á Breiðafirði og hefur stefnan verið sett til hafnar í Stykkishólmi. Baldur varð vélarvana á Breiðafirði í dag um tíu sjómílur frá Stykkishólmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×