Lífið

Hvít-Rússar reknir úr Eurovision

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lagið verður ekki flutt í Rotterdam í maí.
Lagið verður ekki flutt í Rotterdam í maí.

Samband evrópska sjónvarpsstöðva EBU hefur tekið þá ákvörðun að víkja Hvítrússum úr keppni í Eurovision.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá EBU og forsvarsmönnum Eurovision-keppninnar sem fer fram í Rotterdam í maí.

Lagið þykir of pólitískt en í laginu er er hæðst að mótmælum gegn Alexander Lúkasjenka, forseta Hvíta-Rússlands.

Órói hefur ríkt í Hvíta-Rússlandi frá forsetakosningunum í ágúst sem stjórnarandstæðingar fullyrða að hafi verið sviksamlegar. Lúkasjenka lýsti sjálfan sig sigurvegara en hann hefur ríkt í meira en aldarfjórðung. Stjórnarandstæðingar mótmæltu harðlega þeirri ákvörðun hvítt-rússneska ríkissjónvarpsins að senda lagið ´Ya Nauchu Tebya eða á íslensku Ég skal kenna þér í keppnina.

Hljómsveitin Galasy ZMesta, sem gæti útlagst sem „Rödd skynseminnar“, hefur ítrekað gert lítið úr mótmælunum og leiðtogum þeirra í lögum sínum. Í laginu sem varð fyrir valinu í keppnina má meðal annars finna textabrotið „Ég skal kenna þér að hlýða“.

Þetta umrædda lag verður því ekki í keppninni í ár.

Hér að neðan má hlusta á lagið sjálft. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.