Kane sá um Dina­mo Za­greb | Björn Berg­mann byrjaði í tapi

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir tveir eru að tengja vel saman þessa dagana.
Þessir tveir eru að tengja vel saman þessa dagana. EPA-EFE/Neil Hall

Harry Kane sá um Dinamo Zagreb er liðin mættust í Lundúnum í fyrri leik 16-liða úrslita Evrópudeildarinnar í kvöld, lokatölur 2-0. Þá tapaði Molde 2-0 fyrir Granada og Roma vann 3-0 sigur á Shakhtar Donetsk.

Harry Kane kom Tottenham yfir um miðbik fyrri hálfleiks eftir góðan undirbúning Erik Lamela. Var þetta 25. mark Kane á leiktíðinni.

Var það eina mark fyrri hálfleiksins og staðan þar af leiðandi 1-0 er liðin gengu til búningsherbergja. Þegar tuttugu mínútur lifðu leiks gerði Kane út um leikinn með öðru marki sínu og öðru marki Tottenham.

Í öðrum leikjum kvöldsins var Björn Bergmann Sigurðarson gult spjald í 2-0 tapi Molde gegn Granada. Jorge Molina kom Granda yfir í fyrri hálfleik og Roberto Soldado bætti við öðru markinu í síðari hálfleik.

Þarna á milli nældi Martin Ellingsen sér í tvö gul spjöld í liði Molde og norska liðið kláraði leikinn því með aðeins tíu leikmenn inn á vellinum. Þá vann Roma öruggan 3-0 sigur á Shakhtar Donetsk.

Síðari leikir liðanna fara fram eftir viku.


Evrópudeild UEFA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Evrópudeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira