Erlent

Ein stærsta efnahagsinnspýting í sögu Bandaríkjanna samþykkt

Kjartan Kjartansson skrifar
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, og Chuck Schumer, leiðtogi þingmeirihluta demókrata í öldungadeildinni, fagna samþykkt aðgerðapakka Biden forseta í gær. Demókratar hafa nefnt pakkann „bandarísku björgunaráætlunina“.
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, og Chuck Schumer, leiðtogi þingmeirihluta demókrata í öldungadeildinni, fagna samþykkt aðgerðapakka Biden forseta í gær. Demókratar hafa nefnt pakkann „bandarísku björgunaráætlunina“. Vísir/EPA

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti endanlega eina umfangsmestu efnahagsinnspýtingu í sögu Bandaríkjanna til að ráða niðurlögum kórónuveirufaraldursins og koma hjólum atvinnulífsins aftur á hreyfingu. Aðgerðapakkinn var eitt stærsta stefnumál Joes Biden forseta og demókrata á Bandaríkjaþingi.

Alls er aðgerðapakkinn metinn á um 1,9 biljónir dollara, jafnvirði um 243 milljón milljóna íslenskra króna. Af honum renna um 400 milljarðar dollara, jafnvirði um 51.100 milljarða króna, í ávísanir sem verða sendar flestum Bandaríkjunum upp á 1.400 dollara, jafnvirði um 179.000 króna. Þá fara 350 milljarðar dollara, jafnvirði um 44.700 milljarða króna, í aðstoð til ríkis- og sveitarstjórna, aukna barnabætur og fjármögnun bólusetninga, að því er segir í frétt Reuters.

Samþykkt efnahagsinnspýtingarinnar er talin meiriháttar sigur fyrir Biden forseta. „Hjálpin er á leiðinni,“ tísti forsetinn eftir að þingið samþykkti aðgerðapakkann í gærkvöldi. Biden er sagður ætla að staðfesta lögin með undirskrift sinni á morgun.

Enginn repúblikani greiddi atkvæði með frumvarpinu, hvorki í fulltrúadeildinni né öldungadeildinni. Það var samþykkt með 220 atkvæðum þingmanna demókrata gegn 211 atkvæði repúblikana í fulltrúadeildinni. Repúblikanar héldu því fram að aðgerðapakkinn væri of dýr, í hænum væru of mikið að gæluverkefnum demókrata og að versti hluti faraldursins væri hvort eð er afstaðinn. Margir þeirra höfðu engu að síður stutt slíkar aðgerðir þegar Donald Trump var forseti. 

Janet Yellen, fjármálaráðherra, fagnaði aftur á móti samþykkt innspýtingarinnar. Að hennar mati mun hún hraða bata bandaríska hagkerfisins eftir skakkaföllin sem faraldurinn hefur valdið.

Efnahagsaðgerðapakkinn virðist njóta almennra vinsælda í Bandaríkjunum. Í könnun Reuters í vikunni sögðust 70% svarenda styðja hann. Meirihluti stuðningsmanna beggja flokka voru fylgjani aðgerðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×