Skoðun

Eftirlit Alþingis virkar, þrátt fyrir árásir

Jón Þór Ólafsson skrifar

Höfum eitt á kristaltæru: Eftirlit Alþingis með ákvörðunum og verklagi ráðherra er stjórnarskrárbundin skylda.

Í Lekamálinu skipti dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins sér af lögreglurannsókn á aðstoðarmanni hennar.

Í Landsréttarmálinu braut dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins lög til að skipa aðila tengda sér í Landsdóm.

Á aðfangdag hringdi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins tvisvar í lögreglustjóra, sem var þá og er yfirmaður rannsóknar á mögulegu sóttvarnabroti annars ráðherra í sama flokki.

Eftirlitsnefnd Alþingis hóf samkvæmt lögum og skyldum athugun á öllum málunum. Í öllum tilfellum hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins í nefndinni lagst gegn eftirlitinu eða ráðist á þá sem að hafa sinnt eftirlitinu. Það er grafalvarlegt að standa í vegi fyrir eða trufla stjórnarskrárbundna eftirlitsskyldu þingmanna og þingnefnda.

Ítrekuð og alvarleg aðför að eftirliti

Nýjasta dæmið eru ósannindi Brynjars Níelssonar og Óla Björns Kárasonar, þingmanna Sjálfstæðisflokksins í nefndinni. Þeir segja mig hafa brotið trúnað og farið með „dylgjur og rangfærslur“ þegar ég sagði í kvöldfréttum RÚV að:

„Þær upplýsingar sem við fengum bæði hjá dómsmálaráðherra og lögreglustjóranum gefa tilefni til þess að við þurfum að athuga þetta nánar, til þess að sinna okkar eftirlitshlutverki.“

Þingskaparlög segja: „[...] Óheimilt er að vitna til orða nefndarmanna eða gesta sem falla á lokuðum nefndarfundi nema með leyfi viðkomandi [...]” Ég var mjög orðvar í kvöldfréttum RÚV og vitnaði ekki til orða þeirra sem komu fyrir nefndina. Ég sagði aðeins að fram hefðu komið nýjar upplýsingar sem gefa tilefni til þess að athuga þetta nánar.

Fáum úr þessu skorið

Þetta tel ég að geti varla talist trúnaðarbrestur. Ég hef engu að síður óskað eftir því að skrifstofa Alþingis kanni hvort, og þá hvar, formleg mörk liggja í þessum málum. Hvenær trúnaður sé rofinn og hvenær ekki. Jafnframt hef ég upplýst forseta Alþingis um málið og mikilvægi þess að fá úr þessu skorið.

Ef að hófstilltu ummælin mín í gær teljast sem trúnaðarbrestur þá held ég að Alþingi sé vandi á höndum - því að það myndi binda hendur alþingismanna nokkuð svakalega ef þeir mega ekki tala á almennum nótum um störf þingnefnda Alþingis.

Ég hef stjórnarskrárbundna eftirlitsskyldu sem þingmaður, nefndarmaður og formaður eftirlitsnefndar Alþingis til að upplýsa hvort dómsmálaráðherra hafi haft óeðlileg afskipti af lögreglurannsókn. Meðan ég sit í eftirlitsnefnd Alþingis mun hún sinna stjórnarskrárbundnum eftirlitsskyldu sínum gagnvart ráðherrum. Eftirlit með valdi er nauðsynlegt, bæði því sem ég fer með sem og valdi dómsmálaráðherra.

Höfundur er þingmaður Pírata og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×