Tólf leikja bann fyrir að miða byssu á fólk Sindri Sverrisson skrifar 26. febrúar 2021 09:31 Malik Beasley er lykilmaður hjá Minnesota Timberwolves en verður ekki með liðinu í næstu tólf leikjum. Getty/Hannah Foslien Malik Beasley, leikmaður Minnesota Timberwolves, hefur verið úrskurðaður í 12 leikja bann í NBA-deildinni eftir að hann hlaut dóm fyrir að miða byssu á fólk.
Beasley mun ekki fá laun þann tíma sem hann er í banni og verður því af 1,1 milljón Bandaríkjadala, tæplega 140 milljónum króna, áður en hann má snúa aftur til leiks 27. mars. Beasley var fyrr í þessum mánuði dæmdur til 120 daga fangelsisvistar eftir að hafa játað sök vegna glæps sem hann framdi í september í fyrra. Hann miðaði þá byssu á fólk sem hafði lagt bíl sínum fyrir utan húsnæði hans, og skipaði því að yfirgefa svæðið. Hann hélt áfram að miða byssu á bílinn á meðan að fólkið ók í burtu, samkvæmt lögregluskýrslum. Lögregluþjónar sem komu á staðinn fundu sterka maríjúanalykt og við leit í húsinu fannst mikið magn maríjúana og stolin byssa. Beasley þarf ekki að taka út sína fangelisrefsingu fyrr en eftir að leiktíðinni í NBA-deildinni lýkur, og samkvæmt umboðsmanni hans gæti verið að hann taki út refsingu sína í stofufangelsi. Beasley hefur skorað 20,5 stig að meðaltali í leik í vetur en Minnesota hefur gengið afleitlega og er liðið neðst með sjö sigra og 26 töp.
NBA Bandaríkin Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Handbolti Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Fleiri fréttir „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Bætti skólamet pabba síns Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Martin: Skemmtilegra að tryggja þetta fyrir fullri höll Uppgjör: Ungverjaland - Ísland 87-78 | Afleitur annar leikhluti mjög dýr Verður aðeins sá átjándi til að spila níutíu landsleiki Gætu tryggt EM sætið í kvöld: „Skrítin staða að vera í“ Fimm sigrar og eitt grátlegt tap í síðustu sjö landsleikjum Martins Fóturinn tekinn af körfuboltapabbanum kjaftfora Geta fagnað EM sæti þrátt fyrir tap: Fjórar leiðir inn á EM Stólarnir stríddu toppliðinu „Efri hlutinn gefur okkur smá andrými“ Uppgjörið: Hamar/Þór - Valur 83-89 | Valskonur tryggðu sér sæti í efri hlutanum Sjá meira