Innlent

Yfirlögregluþjónn býst við að rýming standi fram yfir hádegi

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Grípa þurfti til rýmingar í gær því óvissa var uppi um um stöðugleika hlíðanna í Botnabrún eftir skriðuföllin i desember. Á ljósmyndinni má sjá eyðilegginguna sem ein skriðanna sem féll í desember olli. Ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands segir að svo virðist sem allt hafi verið með kyrrum kjörum í gærkvöldi og nótt þrátt fyrir talsverða úrkomu.
Grípa þurfti til rýmingar í gær því óvissa var uppi um um stöðugleika hlíðanna í Botnabrún eftir skriðuföllin i desember. Á ljósmyndinni má sjá eyðilegginguna sem ein skriðanna sem féll í desember olli. Ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands segir að svo virðist sem allt hafi verið með kyrrum kjörum í gærkvöldi og nótt þrátt fyrir talsverða úrkomu. Vísir/vilhelm

Yfirlögregluþjónn á Austurlandi á frekar von á því að rýming um fimmtíu húsa á Seyðisfirði muni standa eitthvað áfram en Veðurstofan mun nýta gluggann nú í hádeginu þegar styttir upp til að meta stöðugleika hlíðarinnar.

Um hundrað íbúum var gert að yfirgefa heimili sín í gær vegna skriðuhættu því óvissa var uppi um stöðugleika hlíðanna í Botnabrún eftir skriðuföllin í desember. Allt virtist þó hafa verið með kyrrum kjörum í nótt.

„Rýming gekk prýðilega. Við náðum sambandi við alla í gegnum síma og síðan var þetta kynnt í gegnum fjölmiðla og gekk má segja mjög vel og allir fengu húsaskjól í nótt.“

Þetta sagði Kristján Ólafur Guðnason yfirlögregluþjónn fyrir austan. Fólkið hafi ýmist gist hjá vinafólki eða á hótelum. Aðspurður hvort útlit sé fyrir að fólkið fái að snúa aftur heim í dag sagði Kristján.

„Það er dálítið erfitt að segja um það. Mat Veðurstofunnar fer fram um hádegisbil og staðan verður þá tekin hvort rýmingu verður aflétt þá eða síðar – sem er kannski líklegra en hitt - en staðan verður í það minnsta endurmetin rétt um hádegisbil.“

Nú um hádegi styttir upp að mestu á Austfjörðum en í kvöld er von á öðrum úrkomubakka sem líklega verður í formi slyddu eða snjókomu.

„Það er gert ráð fyrir uppstyttu núna og það er sá gluggi sem Veðurstofan notar til að meta stöðuna; meta stöðugleika hlíðarinnar og þá í framhaldinu varðandi rýmingu hvort henni verði aflétt eða hvort hún verði eitthvað áfram. Við vonum að það verði ekki mjög lengi en þetta gæti dregist eitthvað fram á daginn.“

Eins og gefur að skilja tekur ástandið fyrir austan á íbúanna en Kristján telur að skilningur ríki um að gæta þurfi fyllsta öryggis.

„Við metum skiljum það þannig af viðbrögðum gærdagsins þegar rýming fór fram að íbúar séu algjörlega meðvitaðir og tilbúnir að rýma ef þörf krefur,“ sagði Kristján Ólafur.


Tengdar fréttir

Hættustigi lýst yfir á Seyðisfirði

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi og Veðurstofu Íslands lýst yfir hættustigi á Seyðisfirði vegna mögulegra á skriðufalla. Rýma á hátt í fimmtíu hús í bænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×