Skoðun

Lág­mörkum skaðann

Logi Einarsson skrifar

Um fjórðungur launafólks á erfitt með að ná endum saman samkvæmt nýrri könnun Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins - og um helmingur atvinnulausra. Atvinnuleitendur finna meira fyrir efnahagsþrengingum en aðrir og leita frekar á náðir sveitarfélaga, ættingja eða hjálparsamtaka eftir aðstoð. Þar skera þrír hópar sig út - innflytjendur, ungt fólk og konur.

Hver hópur glímir við sín sérstöku vandamál. Ungir atvinnuleitendur, sem ég geri hér að umtalsefni, eiga erfiðara með að mæta óvæntum útgjöldum en aðrir, hafa minna milli handana og búa við minna húsnæðisöryggi. Þau eiga líka erfiðara með að finna vinnu út af skorti á reynslu á vinnumarkaði.

Yfir 42% ungra atvinnuleitenda segjast búa við slæma andlega heilsu og nær 60% hafa þurft að neita sér um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á síðasta hálfa ári. Allar viðvörunarbjöllur glymja, skammtímaáhrifin eru augljós og langtímaáhrifin gætu orðið alvarleg.

Bág fjárhagsstaða og andleg vanlíðan eru þekktir fylgifiskar atvinnuleysis. En atvinnuleysi skilur eftir sig dýpri ör hjá ungu fólki - og getur haft áhrif á félagslega og efnahagslega stöðu þess til framtíðar: fólk sem upplifir atvinnuleysi ungt er oft einangraðra, seinna til að stofna fjölskyldu, því bjóðast færri atvinnutækifæri og það á á hættu að fá lægri laun síðar á atvinnuferlinum.

Þetta er samfélagslegur vandi sem krefst bæði almennra og sértækra aðgerða stjórnvalda - en ríkisstjórnin hefur sýnt stöðu þessa unga fólks fullkomið fálæti. Tryggja þarf mun fleirum náms- og starfsþjálfunartækifæri, við þurfum að fjárfesta ríkulega í rannsóknum og nýsköpun og ráðast í stórhuga átaksverkefni sem skapa því atvinnu.

Samfylkingin hefur þegar lagt fram tillögu um græna atvinnubyltingu - og hefur ein flokka lagt fram efnahagsáætlun fyrir árið sem gæti skapað allt að 7000 störf. En betur má ef duga skal og við munum halda áfram að leggja til lausnir í sögulegri atvinnukreppu með það að markmiði að lágmarka skaða fyrir fólk á meðan við glímum við veirufjandann, og tryggja öfluga, græna viðspyrnu þegar hann hefur verið sigraður.

Höfundur er formaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×