Erlent

Morðingi Freyju stakk hina barnsmóður sína átján sinnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi morðsins á Freyju Egilsdóttur í Malling.
Frá vettvangi morðsins á Freyju Egilsdóttur í Malling. Vísir/ElínMargrét

51 árs karlmaður sem hefur játað að hafa banað Freyju Egilsdóttur Mogensen í bænum Malling í Árósum var árið 1996 dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir morðið á barnsmóður sinni. Þau höfðu þá skilið að skiptum.

Lýsingar mannsins í yfirheyrslum á sínum tíma benda til þess að rifrildi um forræði yfir tveggja ára dreng þeirra hefði orðið kveikjan að morðinu. Karlmaðurinn stakk barnsmóður sína átján sinnum.

Michael Jeldgaard, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austur-Jótlandi, hefur að sögn Ekstrabladet ekki viljað tjá sig um fyrra morðið sem maðurinn framdi.

Rifrildi um forræði

Århus Stiftstidende rifjar upp fyrra morðið sem maðurinn framdi þann 23. nóvember 1995. Þá var hann 26 ára en barnsmóðir hans tvítug. Morðið var framið í íbúð hennar í Kildegårdsparken í bænum Odder á Jótlandi.

Tveggja ára barn þeirra bjó hjá mömmu sinni en faðirinn var að sækja tveggja ára soninn til hennar umræddan dag. Karlmaðurinn skýrði þannig frá í yfirheyrslu að þau hefðu fljótlega farið að rífast.

„Hún vildi að ég myndi mæta á fund með dagmóðurinni. Ég vildi það ekki því ég þurfti líka að vera í vinnunni,“ er haft eftir karlmanninum.

Í framhaldinu fóru þau að rífast um forræði yfir drengnum og taldi faðirinn sig betur til þess fallinn að fara með forræðið. Í framhaldinu fór hann inn í eldhús og náði í hníf. Hann hélt honum fyrir aftan bak og fór til barnsmóður sinnar.

Fjórar banvænar stungur

„Ég man þetta ekki vel. Ég stóð fyrir framan hana og stakk hana í magann. Hún öskraði,“ sagði faðirinn.

Hann stakk konuna átján sinnum. Fjórar af stungunum voru banvænar. Ein hnífsstungan var í gegnum tvöfalt leðurbelti og slagæð fór í sundur við aðra stungu.

Karlmaðurinn sótti son sinn til dagmóður og hélt í framhaldinu með hann til sinna foreldra, ömmu og afa drengsins. Þau tóku eftir því að eitthvað amaði að syni sínum föðurnum. Aðspurður hvort eitthvað amaði að barnsmóður hans játaði hann því og sagði að þau ættu líklega að hringja á lögregluna.

Játaði brot sitt

Fram kemur að viku eftir að hann og barnsmóðir hans skildu skiptum hefði hann gert tilraun til sjálfsvígs. Var hann lagður inn á geðdeild í stutta stund eftir það.

Það var svo í júní 1996 sem hann var dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir morðið. Játaði hann brot sitt.

Maðurinn hefur nú, 25 árum síðar, játað að hafa öðru sinni banað barnsmóður sinni. Lögregla hefur staðfest að líkamsleifar Freyju Egilsdóttur Mogensen hafi fundist bæði í húsi Freyju og í garðinum hennar.


Tengdar fréttir

Rannsaka bakgrunn og eðli sambands Freyju og hins grunaða

Eftir að grunur vaknaði um að fyrrverandi sambýlismaður og eiginmaður Freyju Egilsdóttur væri sekur um manndráp hefur meginþungi rannsóknar Lögreglunnar á Jótlandi falist í að kortleggja bakgrunn hins grunaða og í því að finna mögulegt tilefni drápsins.

Maðurinn sem myrti Freyju áður verið dæmdur fyrir morð

Karlmaðurinn sem játað hefur að hafa myrt Freyju Egilsdóttur í Malling á Jótlandi hefur áður verið dæmdur fyrir morð. Árið 1996 hlaut hann dóm fyrir morðið á annarri barnsmóður sinni, en sonur þeirra var þá tveggja ára gamall. 

Harmi slegið samstarfsfólk Freyju fær áfallahjálp

Anni Andersen forstöðukona þjónustukjarnans Stenslundcentret í Odder, þar sem Freyja Egilsdóttir vann, kallaði nánasta samstarfsfólk Freyju til fundar í hádeginu í dag til að veita því stuðning og sálræna aðstoð. Tveir sálfræðingar voru kallaðir til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×