Skuggalegir menn komu heim til Ferdinands og sögðu honum að skrifa undir samning við United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. febrúar 2021 11:00 Árið 2005 fékk Rio Ferdinand óvænta heimsókn frá stuðningsmönnum Manchester United. getty/Neal Simpson Rio Ferdinand segir að hópur stuðningsmanna Manchester United hafi komið heim til sín 2005 og hvatt sig til að skrifa undir nýjan samning við félagið.
United keypti Ferdinand frá Leeds United 2002. Þremur árum síðar átti hann í viðræðum við United um nýjan samning en þær höfðu dregist talsvert á langinn. Þá gripu nokkrir stuðningsmenn United til sinna ráða, fóru heim til Ferdinands og biðluðu til hans að skrifa undir nýjan samning. „Einn daginn var ég heima hjá mér þegar dyrabjöllunni var hringt. Einhver var með höndina yfir myndavélinni svo ég sá ekki hver þetta var,“ sagði Ferdinand við YouTube-rásina FIVE. „Ég kíkti út og þá voru tíu til fimmtán menn þar í hettupeysum og með lambhúshettur. Ég hélt að þeir væru komnir til að ræna mig. En sem betur fer öskraði bara einn á mig: skrifaðu undir samninginn.“ Þótt Ferdinand hafi verið feginn að mennirnir væru ekki innbrotsþjófar þótt honum hafi fundist óþægilegt að þeir kæmu heim til sín. Ferdinand tjáði stuðningsmönnunum að hann myndi á endanum skrifa undir nýjan samning við United sem og hann gerði. Ferdinand skrifaði undir fjögurra ára samning við United og lék með liðinu til 2014.
Enski boltinn Mest lesið „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti Hefur Amorim bætt Man United? Enski boltinn „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Íslenski boltinn Sló heimsmetið í ellefta sinn sama dag og hann gaf út sitt fyrsta lag Sport „Ég er stríðsmaður og hef lent í þessu áður“ Körfubolti Dagskráin í dag: Liverpool-banarnir í Plymouth mæta til Manchester Sport Glæsimark Jóhanns tryggði sigurinn gegn Ronaldo og félögum Fótbolti Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Íslenski boltinn Messi var óánægður hjá PSG Fótbolti Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni Handbolti Fleiri fréttir Hefur Amorim bætt Man United? Asensio skaut Villa áfram Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Echeverri má loks spila fyrir Man City „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Sjá meira