Árið hefst með krafti hjá Nýju fötum keisarans Ritstjórn Albumm skrifar 27. janúar 2021 14:30 Hljómsveitin Nýju fötin keisarans var stofnuð nýlega og er meðal annars skipuð fyrrum meðlimum hljómsveitarinnar Í svörtum fötum. Árið 2021 hefst með krafti hjá hljómsveitinni Nýju fötin keisarans. Nýjasta afurð þessarra stuðdrengja kom út í janúar og er lagið þegar farið að hljóma á öldum ljósvakans. Lagið heitir Er ég tilbúinn að elska? og sækir það innblástur sinn í þær aðstæður sem samfélagið hefur fundið sig í síðastliðna mánuði þar sem margir hafa þurft að endurmeta sínar aðstæður og leita inn á við. Þetta er þriðja smáskífa sveitarinnar af væntanlegri breiðskífu. Hér er á ferðinni kraftmikið popp sem gefur von um bjarta tíma. Lagið er eftir gítarleikara sveitarinnar, Hrafnkel Pálmarsson, eða Kela, og textann semur Svenni Þór söngvari. Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband við lagið en Keli á heiðurinn af því. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Dagur Sigurðsson á lausu á ný Lífið Tóku hús í gegn út á Seltjarnarnesi og settu upp hjónasvítu í bílskúrnum Lífið Fimm dýrustu eignirnar sem seldust árið 2024 Lífið Mesta mýtan að fólkið sé grimmt og dónalegt Lífið Átján ára aldursmunur milli yngsta og elsta keppanda í Ungfrú Ísland Lífið Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Menning Innlit í fataskáp Dóru Júlíu Lífið „Get leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum“ Lífið samstarf Dagur Sig og Ingunn Sigurpáls nýtt par Lífið
Lagið heitir Er ég tilbúinn að elska? og sækir það innblástur sinn í þær aðstæður sem samfélagið hefur fundið sig í síðastliðna mánuði þar sem margir hafa þurft að endurmeta sínar aðstæður og leita inn á við. Þetta er þriðja smáskífa sveitarinnar af væntanlegri breiðskífu. Hér er á ferðinni kraftmikið popp sem gefur von um bjarta tíma. Lagið er eftir gítarleikara sveitarinnar, Hrafnkel Pálmarsson, eða Kela, og textann semur Svenni Þór söngvari. Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband við lagið en Keli á heiðurinn af því. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Dagur Sigurðsson á lausu á ný Lífið Tóku hús í gegn út á Seltjarnarnesi og settu upp hjónasvítu í bílskúrnum Lífið Fimm dýrustu eignirnar sem seldust árið 2024 Lífið Mesta mýtan að fólkið sé grimmt og dónalegt Lífið Átján ára aldursmunur milli yngsta og elsta keppanda í Ungfrú Ísland Lífið Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Menning Innlit í fataskáp Dóru Júlíu Lífið „Get leyft mér að borða mat sem ég áður forðaðist í félagslegum aðstæðum“ Lífið samstarf Dagur Sig og Ingunn Sigurpáls nýtt par Lífið